Lind fasteignasala og Helga Pálsdóttir löggiltur fasteignasali kynna snyrtilega 4ra - 5 herbergja íbúð við Dalsel 13 í Reykjavík. Stærð eignarinnar er alls 108,8 fm og skiptist samkæmt Þjóðskrá Íslands í 100,1 fm íbúð og 8,7 fm geymslu.
Eignin skiptist í forstofu, baðherbergi, 4 svefnherbergi, þvottahús, borðstofu, stofu og eldhús. Húsið sjálft hefur fengið gott viðhald á síðustu árum. Rúmgott bílastæði er í lokuðum bílakjallara með þvottaaðstöðu.
** Bílastæði í bílahúsi fylgir eigninni
** 4 svefnherbergi **Íbúðin er 4-5 herbergja, búið var til auka herbergi í stofunni, nýtt parket sett á í byrjun árs 2020, og eldhúsið endurnýjað frá A-Ö. Baðherbergi gert upp um haustið 2020. Svefnherbergin eru fjögur talsins, eitt er 13m2 og hin þrjú eru 7m2 hvert.
Svalir snúa til austurs, bílastæði í mjög snyrtilegu bílahúsi er upphitað og með þvottaaðstöðu. Tengi komið fyrir rafmagnsbílaNánari lýsing Forstofa með parketi á gólfi og góðum fataskáp ásamt fatahengi, og hvítum skóskáp.
Baðherbergið er rúmgott með baðkari með sturtuaðstöðu.
Eldhús með fallegri innréttingu á tvo vegu með góðu borðplássi. helluborð með viftu yfir, innbyggð uppþvottavél ,parket á gólfi.
Stofan er björt og rúmgóð með stórum gluggum og útgangi á svalir til austurs.
Hjónaherbergið er rúmgott með góðum fataskápum og parketi á gólfi.
Barnaherbergi eru þrjú með parketi á gólfi.
Sér þvottahús með tengi fyrir þvottavél, og hvítri innréttingu.
Sérgeymsla ásamt hjóla- og vagnageymslu er einnig á jarðhæðFrábær staðsetning, stutt frá skóla, verslun og allri helstu þjónustu. Allar upplýsingar um eignina veitir Helga Pálsdóttir fasteignasali í síma 822 2123 eða helga@fastlind.is