RE/MAX / Júlían J. K. Jóhannsson löggiltur fasteignasali (sími 823 2641 & julian@remax.is) kynnir: Vel skipulög og góð 3ja herbergja 99 fm íbúð með sérinngangi í reisulegu og fallegu þríbýlishúsi á góðum stað í Laugardalnum. Bugðulækur 20 er skráð 99 fm, þar af góð 7 fm sérgeymsla. Vel staðsett við Bugðulæk stutt frá skóla, leikskóla, sundlaug og allri helstu þjónustu.
Smelltu hér til að sækja söluyfirlit
Nánari lýsing:Sérinngangur inn í flísalagða
forstofu með fataskáp.
Frá
forstofu er farið inn í svefnherbergi með parketi og fataskáp.
Beint inn af
forstofu er
hol með parketi sem tengir saman önnur herbergi íbúðarinnar.
Stór og björt
stofa og
borðstofa með parketi og fallegum bogadregnum glugga sem setur mikinn svip á
stofuna.
Eldhús er með korkflísum á gólfi og hvítri innréttingu með mósaík flísum á milli efri og neðri skápa.
Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf og þar er baðkar, innrétting og gluggi.
Stórt og gott
svefnherbergi með parketi og góðum fataskápum.
Frá
holi er farið inn í
sameignina og þar er sameiginlegt
þvottahús og góð
sérgeymsla.
Stór og góð sameiginleg lóð með grasflöt, hellulagðri stétt og trjágróðri. Húsið hefur fengið gott viðhald í gegnum árin, samkv. fyrri eiganda:2024: Verönd hellulögð og gangstígur á á lóð ásamt því að garður var jarðvegsskiptur og jafnaður að framan.
2022: Rafmagnstafla í sameign endurnýjuð.
2017: Skólp og drenlagnir myndaðar.
2010: Húsið var endursteinað.
2009: Þak var endurnýjað.
1998: Skólp og drenlagnir voru endurnýjaðar árið 1998.
Frábær staðsetning í rólegri götu rétt við útivistarparadísina í Laugardal, með öllu því sem hann hefur upp á að bjóða. Örstutt í skóla, leikskóla og Laugardalslaugina svo ekki sé minnst á sérverslanir af ýmsu tagi, t.d. Pylsumeistarann, Brauð og co., Ísbúðina við Laugalæk og Kaffi Laugalæk, svo eitthvað sé nefnt. Í næsta nágrenni er svo Borgartúnið með ýmiskonar þjónustu m.a. fjölda veitingastaða. Göngufæri út á sjávarsíðuna og í miðborgina.
Bókið skoðun í síma 823-2641 eða á julian@remax.is - Júlían J. K. löggiltur fasteignasali
Vegna mikillar eftirspurnar vantar mig allar tegundir eigna á skrá. Hafðu samband og ég mun verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Við bendum væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi 0,8%, ( 0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða ) og 1.6% (ef lögaðilar) af heildar fasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0.5% - 1,0% af höfuðstól skuldabréfs. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölur kr. 69.900.-