Miðvikudagur 30. júlí
Fasteignaleitin
Skráð 13. júlí 2025
Deila eign
Deila

Grettisgata 60

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Miðborg-101
35.1 m2
2 Herb.
1 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
45.900.000 kr.
Fermetraverð
1.307.692 kr./m2
Fasteignamat
38.800.000 kr.
Brunabótamat
23.050.000 kr.
HL
Hreiðar Levý Guðmundsson
löggiltur fasteignasali
Byggt 1923
Þvottahús
Garður
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2008001
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
2
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Endurnýjað að hluta
Raflagnir
Endurnýjað að hluta
Frárennslislagnir
Endurnýjað að hluta
Gluggar / Gler
Tvöfallt gler. Í lagi að því best er vitað
Þak
Járn og pappi á þaki endurnýjað fyrir ca. 10 árum
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
nei
Lóð
16,87
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Fyrirhugaðar framkvæmdir
Sjá yfirlýsingu húsfélags.
Kvöð / kvaðir
411-Y-01066 KVÖÐ UM ELDVARNARVEGG SJÁ SKJAL Y-1-66
411-Y-01066 KVÖÐ UM GANGSTÍG SJÁ SKJAL Y-1-66 OG A-2-441
Betri Stofan Fasteignasala og Hreiðar Levý lögg. fasteignasali kynna fallega, sjarmerandi og mikið uppgerða 2ja herbergja íbúð á 2. hæð að Grettisgötu 60, 101 Reykjavík. Afar falleg rými með aukinni lofthæð og fallegri gluggasetningu. Íbúðin er mikið uppgerð þar sem eldhús og baðherbergi hafa verið endurnýjuð, gólf pússað og lakkað. Búið að draga rafmagn og fjölga tenglum. Íbúðin skiptist í stofu, svefnherbergi, eldhús og baðherbergi. Sérgeymsla íbúðar er í risi. Þakjárn á húsi endurnýjað fyrir ca. 10 árum, þakrennur, gluggar og gler að mestu og þá var hús múrviðgert og málað. Dren og skólp voru endurnýjuð ca. árið 2000. Afar falleg og sjarmerandi íbúð á vinsælum stað í miðbæ Reykjavíkur.

Bókið skoðun hjá Hreiðari Levý, lögg. fasteignasala í síma 661-6021 eða hreidar@betristofan.is

Eignin Grettisgata 60 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 200-8001, birt stærð 35.1 fm. Sérgeymsla íbúðar er ekki inni í birtum fermetrum eignar.


Frábær staðsetning í miðbæ Reykjavíkur þar sem nálægðin við iðandi mannlíf miðborgarinnar setur hverfið í flokk eftirsóttustu hverfa borgarinnar. Menningin blómstrar í miðborginni og það að búa í göngufæri við leikhús, kvikmyndahús og tónlistarhús býður upp á einstaka möguleika. Fjölmörg kaffihús og fjölbreyttir veitingastaðir eru í næsta nágrenni. Stutt er í allar helstu perlur miðborgarinnar. 

Framkvæmdir innahús:
Eldhús:
- Allt rifið út og sett upp ný innrétting.
- Gamli striginn rifinn af veggjum og settar upp gipsplötur.
- Ný blöndunartæki og nýtt plaströr sem liggur í sameiginlegt frárennslisrör.
- Lokað fyrir op úr eldhúsi í svefnherbergi.
- Dregið í rafmagn og bætt við mörgum nýjum tenglum.
- Ný gluggakista.
Baðherbergi:
- Allt rifið út, nýjar vatnslagnir færðar inn í vegg, nýir rafmagnstenglar, nýtt klósett, sturta, vaskur blöndunartæki etc. allt nýtt.
- Gólf og hálfur veggur flísalagður ásamt sturtu og dúkur í dós undir öllu ásamt vatnsheldum mdf plötum.
Íbúðin í heild sinni:
- Nýir ofnar í öllum herbergjum.
- Allt málað, veggir, loft, gluggar og hurðar pússaðar og lakkaðar.
- Gólf pússað og lakkað, fyllt í milli þjala.
- Auka tvær greinar í rafmagnstöflu.

Framkvæmdir á Húsi og lögnum:
- Dren og skólp voru endurnýjuð ca. árið 2000.
- Nýleg rafmagnstafla er í sameign.
- Þakjárn á þaki endurnýjað fyrir ca. 8 - 10 árum.

Nánari lýsing:
Stofa:
Komið inn í stofu úr stigapalli. Falleg og björt stofa með aukinni lofthæð og fallegum gluggum.
Eldhús: Nýlega endurnýjuð innrétting. Ljós innrétting með efri og neðri skápum, innbyggðum ofni í innréttingu ásamt spanhelluborði og eldhúsvaski. Aðstaða fyrir ísskáp í innréttingu ásamt þvottavél.
Svefnherbergi: Gengið í svefnherbergi innaf stofu. Með fataskápum.
Baðherbergi: Nýlega endurnýjað á snyrtilegan og fallegan máta. Sturta, upphengt salerni ásamt upphengdum vask með stórum spegli fyrir ofan vask. 

Geymsla: Sérgeymsla eignar í risi. 

Falleg og mikið uppgerð 2ja herbergja íbúð með aukinni lofthæð og fallegri gluggasetningu á vinsælum stað í miðborginni.

Nánari upplýsingar veitir Hreiðar Levý Guðmundsson löggiltur fasteignasali, í síma 661- 6021, tölvupóstur hreidar@betristofan.is.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
04/03/202437.700.000 kr.39.500.000 kr.35.1 m21.125.356 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Suðurgata 15
Skoða eignina Suðurgata 15
Suðurgata 15
101 Reykjavík
44.6 m2
Fjölbýlishús
212
1007 þ.kr./m2
44.900.000 kr.
Skoða eignina Þórsgata 20
Skoða eignina Þórsgata 20
Þórsgata 20
101 Reykjavík
30.7 m2
Fjölbýlishús
211
1463 þ.kr./m2
44.900.000 kr.
Skoða eignina Fálkagata 26
Skoða eignina Fálkagata 26
Fálkagata 26
107 Reykjavík
38.9 m2
Fjölbýlishús
21
1206 þ.kr./m2
46.900.000 kr.
Skoða eignina Víðimelur 78
Skoða eignina Víðimelur 78
Víðimelur 78
107 Reykjavík
53 m2
Fjölbýlishús
312
828 þ.kr./m2
43.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin