Miklaborg kynnir:
Falleg og björt 97 fm efri hæð með sérinngangi ásamt rúmgóðum bílskúr og sér bílastæði. Eignin hefur verið mikið endurnýjuð.
Skoðaðu myndband af eigninni hér
NÁNARI LÝSING:
Komið inn í anddyri með fatahengi og þaðan gengið upp bogadreginn, steinsteyptan stiga upp á stigapall og þaðan gengið inn í lítið hol. Eldhús er með fallegri innréttingu, tengi fyrir uppþvottavél, innbyggður ísskápur og vönduð tæki. Stór gluggi er í eldhúsi með fallegu útsýni út á hafið. Stofan er björt og með mikilli lofthæð. Stofa skiptist í stofu og borðstofu, með útgengt á svalir í suð-austur. Baðherbergið er nýlega endurnýjað. Lítil falleg innrétting, upphengd salerni og sturta. Hjónaherbergi er rúmgott með fataherbergi. Gott barnaherbergi Bílskúr er frístandandi og með bæði rafmagni og hita. Inn af bílskúr er góð geymsla. Sér stæði eru framan við bílskúr og komast þar fyrir nokkrir bílar.
GÓLFEFNI: Teppi er á stigagangi, flísar á anddyri og baðherbergi en parket á öðrum gólfum.
FALLEG OG VEL SKIPULÖGÐ EIGN Á FRÁBÆRUM STAÐ A´SELTJARNARNESI MEÐ SÉR INNGANGI, FALLEGU ÚTSÝNI OG BÍLSKÚR.
Allar nánari upplýsingar veitir Ólafur Finnbogason löggiltur fasteignasali í síma 822 2307 eða olafur@miklaborg.is
| Dagsetning | Fasteignamat | Kaupverð | Stærð | Fermetraverð | Nothæfur samningur |
|---|---|---|---|---|---|
| 23/03/2015 | 31.500.000 kr. | 36.000.000 kr. | 125.6 m2 | 286.624 kr. | Já |
| 20/02/2012 | 23.250.000 kr. | 28.000.000 kr. | 125.6 m2 | 222.929 kr. | Já |
| Götuheiti | Pnr. | Póstnr. | m2 | Verð |
|---|---|---|---|---|
105 | 93,6 | 87,9 | ||
105 | 121,3 | 120 | ||
105 | 87 | 86 | ||
105 | 126,2 | 155 | ||
105 | 98,8 | 99,9 | ||
105 | 89,3 | 87,9 |