LIND fasteignasala og Lára Þyri, löggiltur fasteignasali, kynna fallegt raðhús á þremur hæðum með bílskúr við Smyrlahraun 35 í Hafnarfirði. Forstofa, eldhús, stofa og borðstofa, gestasnyrting, geymsla og þvottahús á jarðhæð. Skjólgóð verönd í vestur. Fjögur góð svefnherbergi, geymsla/fataherbergi og baðherbergi á miðhæð. Á efstu hæð (í risi) er óskráð rými, gólfflötur alls um 70 fm, sem skiptist í sjónvarpsrými, svefnherbergi og auka geymslurými undir súð. Svefnherbergin eru því alls fimm. Eignin er skráð 173,8 fm hjá Þjóðskrá Íslands. Íbúðarrými er samtals skráð 144 fm, þar af er neðri hæð 71,5 fm og efri hæð 72,5 fm. Við það bætist óskráð rými í risi (gólfflötur um 70 fm, hluti undir súð, hluti stigaop). Bílskúr er 29,8 fm. Til viðbótar bætast við 10,2 fm óskráð geymslurými í kjallara bílskúrs. Fyrir framan bílskúr er 15,6 m langt bílastæði sem rúmar auðveldlega þrjá bíla. Björt og vel skipulögð eign á góðum stað í Hafnarfirði þaðan sem stutt er alla helstu þjónustu, skóla og leikskóla.Jarðhæð:Forstofa/hol: Flísar á gólfi, fatahengi undir stiga.
Þvottahús: Inn af forstofu. Málað gólf, tengi fyrir skolvask. Opnanlegur gluggi. Í þvottahúsi var áður sturta.
Eldhús: Parket á gólfi, ljós innrétting með góðu skápaplássi, gaseldavél. Tengi fyrir uppþvottavél, pláss í innréttingu fyrir tvöfaldan ísskáp. Opnanlegur gluggi.
Stofa og borðstofa: Opið og bjart rými, parket á gólfi. Útgengi í garð með timburverönd í vestur.
Gestasnyrting: Flísar á gólfi og hluta veggja, handlaug, salerni.
Geymsla: Inn af holi.
Timburstigi liggur upp á miðhæð.
Miðhæð: Stigapallur er parketlagður.
Fjögur svefnherbergi, tvö þeirra með skápum, parket á gólfi. Útgengi á vestursvalir úr hjónaherbergi.
Baðherbergi: Flísar á gólfi og veggjum, innrétting með handlaug, sturta með sturtugleri, upphengt salerni.
Á stigapalli er einnig
lítil geymsla sem nýtt er sem
fataherbergi. Parket á gólfi, fataskápar.
Timburstigi liggur upp í ris.
Ris: Opið og bjart rými sem nýtt er sem
sjónsvarpsrými, parket á gólfi, tveir þakgluggar.
Svefnherbergi: Parket á gólfi, þakgluggi.
Gott geymslurými er undir súð.
Tveir ljósleiðarar eru í húsinu, frá Mílu og Gagnaveitunni.
Bílskúr: Steypt gólf. Sér inngangshurð. Kalt vatn er í bílskúr sem og hitagrind fyrir lengjuna. Undir gólfi í bílskúr er ca.
10 fm óskráð geymslurými með 212 cm lofthæð. Þar er ofn, lýsing og hillur.
Allar nánari upplýsingar veitir:
Lára Þyri Eggertsdóttir, löggiltur fasteignasali/B.A. í lögfræði í síma 899-3335 eða lara@fastlind.is
Framkvæmdir undanfarið að sögn seljenda:
1995 Nýtt þak var sett á húsið og það hækkað. Þakjárn og pappi var svo endurnýjað 2014/15.
2004 Nýtt rafmagn í íbúð.
2008 Opnað upp í þakrými frá miðhæð, nýtt milliloft sett upp og herbergi og sjónvarpsrými útbúið í risi. Þrír nýir þakgluggar voru settir upp á sama tíma.
2013 Baðherbergi á miðhæð endurnýjað, nýjar neystuvatnslagnir á baðherbergi.
2014/15 Eldhús endurnýjað, nýjar neysluvatnslagnir í eldhús.
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Lind fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati, lögaðili greiðir 1,6%
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.