ALLT fasteignasala kynnir í einkasölu eignina Einidalur 20, viðhaldslítið parhús með bílskúr á einni hæð með stórum aflokuðum garði og bílaplani. Birt stærð 128.9 fm. Eignin er staðsett innar inn í botnlanga.Nánari lýsing: Forstofa með skápum. Eldhús, stofa og borðstofa í sameiginlegu björtu alrými. Eldhús með góðu skápaplássi, eldhúseyja með silestone quartz borðplötu. Úr alrými er útgangur í upphitaðan sólskála, úr sólskála er útgengi út á stóra verönd með heitum pott. Baðherbergi, þrjú svefnherbergi, þvottahús, bílskúr og geymsluloft.
Falleg og mjög vel skipulögð eign, privat garður fyrir öllum nema fuglinum fljúgandi. Með sólhúsi og heitum pott er afslöppunarafþeyingin heima fyrir.
Allar nánari upplýsingar og skoðanabókanir veitum við:Haukur Andreasson lögfræðingur/löggiltur fasteignasali í
866-9954 eða
haukur@allt.is Páll Þorbjörnsson löggiltur fasteignasal í síma
560-5501 eða
pall@allt.is- Byggingarár eignar er 2008 en standsett árið 2013
- Bílskúr með epoxy á gólfi og góðu geymslulofti.
- Húsið er hitað upp með gólfhita.
- Innfeld lýsing
- Sérsmíðaðar innréttingar, forstofuskápur og hurðar frá RH-innréttingum
- Gólfefni íbúðarrýmis eru flísar með parket áferð og Decoline Comfort í sólskála.
- Stór verönd með palli, hitaveitu heitapotti og stórum grasfleti. Skjólgirðing allan hringinn, sem er með mikið næði.
- Mjög rúmgott, steypt bílaplan með snjóbræðslu, búið að koma fyrir hleðslustöð fyrir rafmagnsbíl.Nánari lýsing eignar:Eldhús: Háglans innrétting með góðu geymsluplássi, með silestone quartz steinplötu á eldhúseyju og undirlímdum vask ásamt niðursettu helluborði. Loftháfur og innbyggð uppvöskunarvél og aðstaða fyrir amerískan ískáp.
Stofa og borðstofa í opnu rými. Skuggarönd með led ljósum. Parketflísar á gólfi.
Sólstofa með útgengni út á sólpall með heitum pott.
Svefnherbergi eru alls þrjú, með parketflísum á gólfi. Hjónaherbergi með góðum skápum og útgengni út á sólpall.
Baðherbergi flísalagt, handklæðaofn, postulín vaskaborð, baðkar með sturtuþili, upphengt salerni og speglaskápur.
Þvottahús er í rými milli bílskúrs og íbúðar. Parket flísar á gólfi og góðar innréttingar í vinnuhæð.
Bílskúr er með epoxy á gólfi, gott geymsluloft aðgengilegt gegnum fellistiga.
Umhverfi: Stórt vélslípað bílastæði, lóð er öll aflokuð með hárri girðingu. Lóð er tyrfð með sólpalli og heitum pott.
Eignin hefur verið útbúin þannig að við heitavatnsleysi hefur verið komið fyrir gegnumstreymishitara sem gengur fyrir raforku.
Í dag eru þrjú svefnherbergi í húsinu, eitt þeirra skráð sem geymsla skv. teikningum.
Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – skráðu eignina þín í dag og tryggðu þér forskotið.ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:Hafnargötu 91, 230 Reykjanesbæ - Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
Kostnaður kaupanda:1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 2.700.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.