Laugardagur 19. apríl
Fasteignaleitin
Skráð 15. apríl 2025
Deila eign
Deila

Hraunbær 58

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Árbær-110
82.2 m2
2 Herb.
1 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
57.900.000 kr.
Fermetraverð
704.380 kr./m2
Fasteignamat
52.400.000 kr.
Brunabótamat
41.150.000 kr.
SS
Soffía Sóley Magnúsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1967
Garður
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2044694
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
3
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
3
Svalir
svalir
Lóð
0,74
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Domusnova Akranesi og Soffía Sóley lögg.fasteignasali kynna: 

Hraunbær 58, Rvík.  Björt og rúmgóð þriggja herbergja 82,2 fm. íbúð á þriðju hæð 
Staðsett í göngufæri frá  m.a. matvöruverslun, skóla , sundlaug, heislugæslu og bókasafni 


Lýsing:
Forstofa með skápum.  
Eldhús með flísum á gólfi, eldri innrétting, bakarofn, helluborð og háfur, tengi fyrir þvottavél.
Rúmgóð  stofa/borðstofa með útgengi út á vestur svalir. 
Hjónaherbergi með skápum, barnaherbergi (málað gólf), frá barnaherbergi er útgengt út á austur svalir. 
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum að hluta, baðkar með sturtu.
Parket á forstofu, stofu, borðstofu, gangi og hjónaherbergi. 
Á jarðhæð er sér  6 fm. geymsla, málað gólf, hillur fylgja.   Geymslan er innifalin í  heildarfermetrum eignarinnar.
Á jarðhæð er sameiginlegt þvotta-/þurrkherbergi og hjólageymsla.

Eignin nýtur aðgengis að merktu bílastæði sem þó er í sameign allra.

Endurnýjað að sögn fyrri eiganda:
2010: gluggar og svalahurðir á austurhlið hússins,  þakpappi og þakjárn, framhlið hússins steinuð og útihurð og hurð á ruslageymslu.
2020: gluggar og svalahurðir á vesturhlið hússins, útihurð bakatil og hurð á hjólageymslu.

Endurn. 2024: Sameign máluð og teppalögð.  

Nánari upplýsingar veitir:
Soffía Sóley Magnúsdóttir löggiltur fasteignasali / s.846 4144 / soffia@domusnova.is


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.

Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi er til skýringar á þeirri skráningu:
  Nýtt - Eignin er nýbygging.
  Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
  Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
  Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
  Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
29/10/202452.000.000 kr.55.600.000 kr.82.2 m2676.399 kr.
18/10/202133.650.000 kr.41.700.000 kr.82.2 m2507.299 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Tangabryggja 18
Opið hús:19. apríl kl 14:00-14:30
Skoða eignina Tangabryggja 18
Tangabryggja 18
110 Reykjavík
66.9 m2
Fjölbýlishús
211
895 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Skoða eignina Reykás 29
Skoða eignina Reykás 29
Reykás 29
110 Reykjavík
70.1 m2
Fjölbýlishús
211
854 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Skoða eignina Nökkvavogur 36
Skoða eignina Nökkvavogur 36
Nökkvavogur 36
104 Reykjavík
65.4 m2
Fjölbýlishús
413
885 þ.kr./m2
57.900.000 kr.
Skoða eignina Karfavogur 31
Opið hús:22. apríl kl 17:30-18:00
Karfavogur 31, kjallari.
Skoða eignina Karfavogur 31
Karfavogur 31
104 Reykjavík
70 m2
Fjölbýlishús
211
856 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin