Mánudagur 22. júní
Fasteignaleitin
Skráð 22. júní 2026

Dvergholt 15

Nýbygging • SumarhúsVesturland/Borgarnes-311
85.3 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
62.900.000 kr.
Fermetraverð
737.397 kr./m2
Fasteignamat
38.150.000 kr.
Mynd af Jón Smári Einarsson
Jón Smári Einarsson
Löggiltur fasteignasali / MPM, viðskiptafræðingur
Garður
Tveir Inng.
Fasteignanúmer
2335150
Landnúmer
177502
Húsgerð
Sumarhús
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
1
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Nýtt
Raflagnir
Nýtt
Frárennslislagnir
Nýtt
Gluggar / Gler
Nýtt
Þak
Nýtt
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Sólpallar
Lóð
100
Upphitun
Rafmagn
Inngangur
Tveir inngangar
Jón Smári Einarsson lgf. s. 860-6400 og Fasteignaland kynna glæsilegt nýtt sumarhús við Dvergholt 15 í landi Galtarholts 3, 311 Borgarbyggð.

Sumarhúsið er á 5.000 fm eignalóð. Eignin Dvergholt 15 er skráð sem hér segir hjá HMS: Eign 233-5150, birt stærð 85,3 fm. 

Húsið er mjög vandað, með fallegum innréttingum og steyptri gólfplötu. Midea varmadæla, loft í vatn fyrir gólfhita og neysluvatn.

Lýsing eignar:
Forstofa með flísum á gólfi og hljóðdempandi panel á veggjum.
Stofa og eldhús er í stóru opnu parketlögðu rými sem er m.a. með innfelldri lýsingu og hljóðdempandi panel á vegg. Aðgengi er að palli/lóð um svalahurð frá stofu.
Eldhús er opið með fallegri innréttingu efri og neðri skápum og skúffum. Spanhelluborð, ofn, innbyggð uppþvottavél og innbyggður ísskápur/frystir.
Þrjú rúmgóð svefnherbergi eru húsinu, öll teppalögð og eru tvö þeirra með nýjum tvöföldum rúmum.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf. Falleg innrétting með skúffum, handlaug og speglaskápur með lýsingu fyrir ofan vask. Upphengt salerni og sturtu "walk-in".  Þar er pláss fyrir þvottavél og þurrkara í innréttingu.
Að utan er húsið klætt með dökkgráu bárujárni og rauðum alubond plötum. Þak er með þakdúk.
Góð timburverönd er á suðurvestur- og norðvesturhlið hússins.
Lóðin er eignarland, með kjarri og móa. Hún skilast eins og hún er sem er að mestu leiti frá náttúrunnar hendi. Bílaplan er tilbúið, en eftir á að jafna út og tyrfa hluta lóðar. 
 
Góð aðkoma og næg bílastæði.
Lokað svæði með rafmagnshliði (símahlið).


Árgjald í félag sumarhúsaeigenda á svæðinu er um kr. 35.000.

Möguleiki er á að fá allt innbú á myndum með í kaupunum samkvæmt samkomulagi.
 
Staðsetning og nærumhverfi:
Stutt er á þekkta staði á Vesturlandi svo sem  Arnarstapa, Kirkjufell, Snæfellsjökul, Hraunfossa, Barnafossa, Deildartunguhver, Akranes og Stykkishólm.
Stutt í golf, gönguleiðir, útivist og í alla verslun og þjónustu í Borgarnesi.

Einkar vel skipulagt og staðsett hús á vinsælum stað.

Sjón er sögu ríkari. Bókið skoðun í síma 8606400.

Nánari upplýsingar veitir:
Jón Smári Einarsson
Löggiltur fasteignasali / MPM, viðskiptafræðingur.
jonsmari@fasteignaland.is
Sími +354 860-6400

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignaland fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.

Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
  Nýtt - Eignin er nýbygging.
  Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
  Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
  Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
  Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup á íbúðarhúsnæði m.v. amk. 50% hlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda kr. 69.900 . 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (44)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Fauskás 9
Skoða eignina Fauskás 9
Fauskás 9
311 Borgarnes
89.8 m2
Sumarhús
413
667 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Skoða eignina Asparlaut 1
Bílastæði
Opið hús:25. júní kl 17:00-17:45
Skoða eignina Asparlaut 1
Asparlaut 1
230 Reykjanesbær
100.7 m2
Fjölbýlishús
322
724 þ.kr./m2
72.900.000 kr.
Skoða eignina Skipasund 84
3D Sýn
Skoða eignina Skipasund 84
Skipasund 84
104 Reykjavík
70.5 m2
Fjölbýlishús
312
850 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Skoða eignina Hnjúkamói 14 (402)
Hnjúkamói 14 (402)
815 Þorlákshöfn
71.6 m2
Fjölbýlishús
312
767 þ.kr./m2
54.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin