Lind fasteignasala kynnir vel skipulagða 99,7 fm. 4ra herbergja endaíbúð á 2 hæð með sérinngangi á góðum stað í Vogum.
Eignin skiptist í anddyri, hol, eldhús, stofu, borðstofu, baðherbergi, 3 svefnherbergi, þvottahús, geymslu og svalir.
Skipt var um gólfefni á alrými, stofu og eldhúsi á síðasta ári (2024) ásamt eldhúsinnréttingu.
Nánari upplýsingar veita:
Arinbjörn Marinósson lgf í síma 822-8574 eða á netfangið arinbjorn@fastlind.is eða
Elín Auður Traustadóttir í síma 858-0978 eða á netfangið elin@fastlind.is
Nánari lýsing:
Komið er inn í anddyri með parketi á gólfi og góðum fataskáp.
Hol er nýlega parketlagt
Alrýmið skiptist í Eldhús, stofu og borðstofu sem eru í opnu björtu rými. Í stofunni er útgengt út á svalir með fallegt útsýni.
Eldhús er parketlagt með nýlegri innréttingu (2024). Einnig var helluborð og bakaraofn endurnýjað 2024.
Baðherbergi hefur flísar á gólfi og veggjum, snyrtileg innrétting, baðkar með sturtu haus, salerni og handklæðaofn. Inná baðherbergi er þvottahús.
Svefnherbergin eru 3 talsins, öll parketlögð með fataskápum, hjónaherbergið er rúmgott með stórum fataskáp.
Geymsla er innan íbúðar sem hægt er að nýta sem herbergi.
Bílaplan er malbikað, svalir með fallegt útsýni, lóð að aftan er ræktuð.
Staðsetningin er góð, barnvænt hverfi, stutt í leik- og grunnskóla auk sundmiðstöð, íþróttahús og útivistarsvæði.
Allir kaupendur okkar fá Vildarkort Lindar. Með því að framvísa kortinu færð þú 30% afslátt hjá 10 samstarfsaðilum: Húsgagnahöllin, S. Helgason, Flugger litir, Húsasmiðjan,
Z brautir og gluggatjöld, Vídd, Parki, Vodafone, Betra bak og Dorma.
Eignin Heiðargerði 1 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 227-8342, birt stærð 99.7 fm.
Nánari upplýsingar veitir Elín Auður Traustadóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 858 0978, tölvupóstur elin@fastlind.is.
-----------------------------------------------------------------------
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila
Fyrstu kaup - 0,4% af heildarfasteignamati
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.