Eignamiðlun kynnir:
Virkilega falleg, björt og rúmgóð 4-5 herbergja enda íbúð á 2. hæð á góðum stað í Seljahverfinu. Um er að ræða alls 101,4 fm eign með 3 svefnherbergjum, bjartri stofu sem er í opnu rými með borðstofu og eldhúsi og snyrtilegu baðherbergi með þvottaaðstöðu. Á jarðhæð er íbúðarherbergi með aðgengi að sameiginlegu salerni sem möguleiki er á að leigja út. Sérgeymsla ásamt sameiginlegu þvottahúsi, hjóla- og vagnageymslu er einnig á jarðhæð. Íbúðin var mikið endurnýjuð árið 2023 þar sem m.a. var skipt um eldhúsinnréttingar, gólfefni, baðherbergi endurnýjað, hurðar málaðar o.fl.
Nánari lýsingForstofa: Gengið er inn í rúmgott og bjart miðrými íbúðarinnar þaðan sem gengið er inn í aðrar vistverur. Parket á gólfi.
Eldhús: Stórt og rúmgott í opnu rými með stofu og borðstofu. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél, bakaraofn í vinnuhæð og gott skápa- og vinnupláss. Parket á gólfi.
Stofa: Björt og falleg með útgengi á rúmgóðar suður svalir. Parket á gólfi.
Hjónaherbergi: Rúmgott með stórum fataskáp. Parket á gólfi.
Herbergi I: Parket á gólfi og fataskápur.
Herbergi II: Parket á gólfi og fataskápur.
Herbergi III: Á jarðhæð er aukaherbergi með aðgengi að sameiginlegu salerni. Parket á gólfi. Möguleiki á útleigu.
Baðherbergi: Snyrtilegt baðherbergi með upphengdu salerni, sturtu, handkæðaofn, þvottaaðstöðu og opnanlegum glugga. Flísalagt í hólf og gólf.
Geymsla: Er vel staðsett við inngang á jarðhæð.
Húsið hefur fengið gott viðhald á undanförnum árum. Þakið er endurnýjað að hluta 2021 (skipt um pappa og járn), skipt um glugga og gler eftir þörfum 2016, húsið múrviðgert og málað 2016.
Virkilega björt og rúmgóð íbúð á skjólsælum og fjölskylduvænum stað í Seljahverfi, stutt í leikskóla, skóla og alla helstu þjónustu í Seljahverfi og nágrenni.
Nánari upplýsingar veitir:Alfreð Valencia, löggiltur fasteignasali, í síma 776-2150 eða
alfred@eignamidlun.isOddný María Kristinsdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 777-3711 eða á
oddny@eignamidlun.is***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook