Fasteignasalan TORG kynnir: Fallega, rúmgóða og bjarta 3ja herbergja útsýnisíbúð á á annari hæð. Birt stærð íbúðar er 102,1 fm og þar af er geymslan skráð 6,9 fm. Íbúðin er á annarri hæð og gengið er upp hálfa hæð. Fallegt útsýni yfir Rauðavatn og nágrenni frá stofu og eldhúsi. Tvennar svalir. Íbúðin skiptist í forstofu, hol, stofu og eldhús í alrými, þvottahús, fataherbergi, svefnherbergi, hjónaherbergi og baðherbergi. Sérgeymsla er í sameign. Frábær staðsetning þar sem stutt er í alla helstu þjónustu skóla, leikskóla, sundlaug og fallegar gönguleiðir.
Allar nánari upplýsingar veitir Þóra Þrastardóttirdóttir löggiltur fasteignasali í gsm. 822-2225 eða thora@fstorg.isSækja söluyfirlit hér.Nánari lýsing:Forstofa: Komið er inn í góða forstofu með skáp og flísum á gólfi.
Eldhús/stofa: Eldhús og stofa mynda alrými með pl. parketi, á gólfi við eldhúsinnréttingu eru flísar. Glæsilegt útsýni er yfir Rauðavatn og víðar. Útgengt er út á austursvalir frá stofu.
Eldhús með vandaðri hvítri innréttingu á neðri skúffum og svartir efri skápar. Flísalagt á milli skápa. Ofn með stáláferð í vinnuhæð, tengi fyrir uppþvottavél, spanhelluborð og háfur yfir.
Þvottahús: Er inn af eldhúsi með flísar á gólfi.
Baðherbergi: Er með fallegri innréttingu, spegill með ljósi er fyrir ofan innréttingu. Flísalögð sturta með glerhlið, baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf. Upphengt salerni og handklæðaofn.
Hjónaherbergi: Rúmgott með góðu skápaplássi sem nær uppí loft, stórum glugga, útgengi út á vestursvalir og pl. parketi á gólfi.
Barnaherbergi: Er með fataskáp og pl. parketi á gólfi.
Lítil geymsla innan íbúðar.
Geymsla: Sérgeymsla er í kjallara ásamt sameiginlegri
hjóla- og vagnageymslu.Falleg eign á góðum stað í Árbænum. Snyrtileg sameign og aðeins 8 íbúðir í stigahúsi. Fallegt útsýni yfir Rauðavatn og nágrenni.
Húsið hefur fengið gott viðhald og lóð snyrtileg.Stutt er í alla helstu þjónustu, skóli, leikskóli og sundlaug í göngufæri. Einnig eru margar fallegar göngu/hjólaleiðir í kring. Allar nánari upplýsingar veitir Þóra Þrastardóttir löggiltur fasteignasali í gsm. 822-2225 eða thora@fstorg.isGjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:Stimpilgjald af kaupsamningi: 0.8% af fasteignamati eignar fyrir einstaklinga en 1.6% fyrir lögaðila,
en 0.4% ef um fyrstu íbúðarkaup er að ræða.
Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
Umsýslugjald fasteignasölu, samkvæmt gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.
Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og
ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma
í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags.
Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir
og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.