FASTEIGNASALAN TORG KYNNIR Í SÖLU: Glæsilegt einbýlishús á þremur pöllum og kjallara, ásamt bílskúr, við Lambasel 5, Reykjavík. Eignin er skráð 238,6 fm að stærð, þar af íbúðarrými 210,3 fm og bílskúr 28,3 fm. Til viðbótar eru um 70 fm á neðsta palli sem eru ekki skráðir. Samtala er því um 308,6 fm.
Eignin skiptist í anddyri og hol, stofa, eldhús og borðstofa í alrými, þrjú svefnherbergi, þar af glæsileg hjónasvíta með fataherbergi og baðherbergi, setustofa, þrjú baðherbergi (þar af eitt inn af hjónasvítu) og gestasalerni, þvottahús og í kjallara er um 70 fm svíta með baðherbergi sem getur með tilbreytingum nýst sem íbúð með sér inngangi. Aukin lofthæð er í öllum rýmum, einnig í kjallararými. Útgengt er út á pall frá eldhúsi, setustofu, hjónasvítu, þvottahúsi og kjallara. Garðurinn er glæsilegur, með fallegri lýsingu, og pallar og hellulagt að hluta til. Heitur pottur og útisturta.
Eignin er öll hin glæsilegasta með aukinni lofthæð, hita í öllum gólfum, eldhústækjum frá Miele, sérsmíðuðum innréttingum og stein frá Fígaró á borðum í eldhúsi og baðherbergjum, að undanskilinu gestasalerninu. Einstakt útsýni yfir borgina. Lóðin er 702 fm fullfrágengin, með upphituðum bílastæðum fyrir framan bílskúr.
Húsið er byggt 2006 en var tekið í gegn að miklu leiti 2015.Allar nánari upplýsingar veitir Matthildur Sunna Þorláksdóttir, lögfræðingur og löggiltur fasteignasali, í síma 690-4966 eða matthildur@fstorg.is og Þorlákur Ómar Einarsson, löggiltur fasteignasali, í síma 820-2399 eða thorlakur@fstorg.isNánari lýsing:Komið er inn í anddyri með góðu skápaplássi, sem hægt er að loka af með dökkri gler rennihurð, og rúmgott hol. Gestasnyrting er inn af anddyri, með upphengdu wc, vaski og opnanlegum glugga.
Á þeim palli sem gengið er inn á eru tvö rúmgóð svefnherbergi, baðherbergi og innangengt í bílskúr með góðu gleymsluplássi og rafmagnsopnara á hurð.
Gengið er upp á efri pall þar sem alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi er. Eldhúsið er opið og bjart með fallegum, sérsmíðuðum innréttingum, innfelldri lýsingu og góðu skápaplássi. Stór eldavélareyja með stein frá Fígaró, gott geymslupláss og góð vinnuaðstaða. Innbyggð uppþvottavél, ísskápur og frystir. Tæki í eldhúsi eru Miele. Útgengt er frá eldhúsi niður í garð.
Borðstofa og stofa eru mjög rúmgóðar og bjartar, með miklum gluggum. Arinn er í stofu. Gengið er út á svalir frá stofu, með fallegu útsýni til norðvesturs.
Á neðri palli er setustofa með rennihurð út á pall til suðurs og gengið er frá setustofu inn í stóra hjónasvítu þar sem útgengt er út á pall. Herbergið er með hálf lokuðu fataherbergi og mjög rúmgóðu baðherbergi með sturtu, góðri innréttingu og upphengdu klósetti. Innnrétting er úr dökkum við og með steinplötu. Einnig er hægt er að ganga inn á baðherbergi úr setustofu.
Þvottahús er með útgengt á viðarpall.
Af neðri palli er gengið niður í um 70 fm kjallara þar sem útbúin hefur verið stór svíta. Hátt er til lofts og sér inngangur. Baðherbergi er mjög rúmgott, með innréttingu úr stein, upphengdu klósetti og stórum sturtuklefa sem einnig virkar sem gufa.
Parket er á öllum rýmum húss nema votrýmum og anddyri, sem eru flísalögð.
Bílskúr, 28,3 fm sem innangengt er úr inn í hús. Stórt, upphitað, hellulagt plan er fyrir framan skúr.
Garðurinn er hinn glæsilegasti, stór pallur er til suðvesturs og heitur pottur og útisturta við norðvestur hlið hússins.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 2.700,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
TORG fasteignasala bendir fasteignakaupendum á ríka skoðunarskyldu kaupenda sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga. Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.
eignarhús.