PRODOMO fasteignasala kynnir glæsilega þriggja herbergja íbúð á annarri hæð í lyftuhúsi að Njarðarvöllum 8 í Reykjanesbæ.Eignin samanstendur af opnu og björtu alrými, tveimur rúmgóðum herbergjum, baðherbergi, geymslu og bílastæði í bílakjallara.Nánari lýsing:
Eldhús, borðstofa og stofa eru með parketi á gólfi. Stílhrein ljós grá innrétting í eldhúsi með quarts borðplötu, innbyggðum ísskáp og uppþvottavél. Frá stofu er útgengt á góðar svalir með svalalokun.
Herbergin tvö eru með parketi á gólfum, fataskápar eru í þeim báðum.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum að hluta. Ljós grá innrétting með quarts borðplötu, handklæðaofn og aðstaða fyrir þvottavél/þurrkara.
Geymsla með máluðu gólfi.
Gardínur í alrými fylgja eigninni ásamt því að öll ljós að borðstofuljósi frátöldu munu fylgja.
Þvottaaðstaða fyrir bíla er í húsinu. Húsið er klætt hvítri álklæðningu sem hefur þá kosti að vera viðhaldslítil. Í bílakjallara er lagt fyrir rafmagnshleðslu.
Innangengt er í þjónustumiðstöð aldraðra að Nesvöllum. Á baklóð hússins er inngarður með litlum púttvellli þar sem hægt er að njóta samvista.
Frábær staðsetning þar sem stutt er í flesta þjónustu.Allar nánari upplýsingar veitir:
Lilja Valþórsdóttir
Löggiltur fasteignasali
420-4030 / 860-6886
lilja@prodomo.is Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. PRODOMO fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlitið er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
* Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga.
* Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
* Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
* Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
* Kaupandi greiðir skipulagsgjald af hinum selda eignarhluta þegar það verður lagt á, nú 0,3% af brunabótamati.