Fimmtudagur 30. júlí
Fasteignaleitin
Skráð 30. júlí 2026

Mýrarsel 2

EinbýlishúsSuðurland/Ölfus-816
126.2 m2
3 Herb.
2 Baðherb.
Verð
104.900.000 kr.
Fermetraverð
831.220 kr./m2
Fasteignamat
79.050.000 kr.
Brunabótamat
82.750.000 kr.
Mynd af Elka Guðmundsdóttir
Elka Guðmundsdóttir
Fasteignasali
Byggt 2019
Pallur
Heitur pottur
Á einni hæð
Sérinng.
Fasteignanúmer
2343690
Landnúmer
203915
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Forsteypt
Númer hæðar
01
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Upprunalegar
Raflagnir
Upprunalegt
Frárennslislagnir
Upprunalegt
Gluggar / Gler
Upprunalegir
Þak
Upprunalegt
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Elka lgf. s. 863-8813 og TORG fasteignasala kynna einstaklega fallega og vel útbúna 126,2 m² eign á 9.995 m² eignarlóð í friðsælu og grónu umhverfi í Ölfusi.
Húsið er í dag nýtt bæði sem heimili og gistiheimili og liggur fyrir leyfi til heilsársútleigu til ferðamanna. Eignin býður því upp á spennandi tækifæri fyrir þá sem vilja sameina heimilishald og rekstur gistiheimilis, nýta hana eingöngu til búsetu, sem glæsilegt sumarhús eða sem gistiheimili.  Heitt vatn frá hitaveitu.
Húsið er bjart og mjög smekklega innréttað með rúmgóðu alrými, þremur svefnherbergjum samkvæmt núverandi fyrirkomulagi, tveimur baðherbergjum og sérstakri gestaaðstöðu með aukaeldhúsi.
Við húsið er stór verönd og glæsilegt spa-svæði með útigufubaði, heitum potti, köldum potti og útisturtu.
Á lóðinni er einnig lítið einangrað og upphitað garðhús. Samkvæmt samþykktum uppdrætti er gert ráð fyrir byggingarreitum fyrir hesthús og gróðurhús á lóðinni, sem eykur enn frekar fjölbreytta nýtingarmöguleika eignarinnar.
Nánari upplýsingar veitir Elka Guðmundsdóttir Fasteignasali, í síma 863-8813, tölvupóstur elka@fstorg.is.

Lýsing eignar
Komið er inn í bjartan gang með góðri fata- og skóaðstöðu.
Alrými hússins er rúmgott og bjart þar sem eldhús, borðstofa og stofa mynda fallega heild. Mikil lofthæð og stórir gluggar hleypa birtu inn og skapa skemmtilega tengingu við umhverfið.
Eldhúsið er í hlýlegum sveitastíl með góðu skápa- og vinnuplássi. Þar eru vönduð þýsk eldhústæki, meðal annars 90 cm breiður bakaraofn, helluborð með innbyggðum gufugleypi, uppþvottavél, ísskápur og keramikvaskur.
Borðstofan er rúmgóð og rúmar stórt matarborð. Stofan er björt og falleg með stórum gluggum og fallegu útsýni. Útgengt er úr alrýminu á stóra verönd.
Svefnherbergin eru þrjú samkvæmt núverandi fyrirkomulagi. Hjónaherbergið er rúmgott og með góðum fataskápum.
Tvö önnur herbergi eru í dag nýtt sem gestaherbergi.
Baðherbergin eru tvö, bæði björt og snyrtileg með sturtuaðstöðu. Á öðru baðherberginu er einnig bidet (skolskál).
Í gestahluta hússins er aukaeldhús með rauðum innréttingum, helluborði, ísskáp og örbylgjuofni. Sú aðstaða nýtist vel við rekstur gistiheimilis og skapar aukið næði fyrir gesti.
Þvotta- og tæknirými er með þvottavél, þurrkara, aukakæli og frysti ásamt góðum hillum og geymsluplássi.
Vandað vínylparket er á gólfum hússins. Gólfhiti er í öllum rýmum og hægt er að stilla hita sérstaklega í hverju herbergi.

Við húsið er glæsilegt spa-svæði sem byggt var árið 2024. Þar er útigufubað með stórum útsýnisglugga og rými fyrir allt að fimm manns, fimm manna heitur pottur frá NormX, kaldur pottur og útisturta.
Heiti potturinn er í skjóli og undir þaki. Búnaðurinn er með rafrænni stýringu og sjálfvirkum lokum fyrir áfyllingu og tæmingu. Stemningslýsing og Bluetooth-hljóðkerfi.
Húsið selst með húsgögnum og útigrilli.
Samkvæmt fasteignaskrá er húsið 126,2 m² einbýlishús, skráð byggt árið 2019. Húsið er timbureiningahús á staðsteyptum og einangruðum sökkli og steyptri botnplötu.
Þriggja fasa rafmagn er í eldhúsi og við gufubað og gert hefur verið ráð fyrir hleðslustöð við bílastæði. Ídráttarrör fyrir ljósleiðara hefur verið lagt frá húsi að götu (ekki búið að tengja inní hús)
Lóðin er 9.995 m² eignarlóð, gróin og skjólsæl. Húsið stendur fallega í landinu með útsýni yfir sveitina og til fjalla.

Samkvæmt samþykktum uppdrætti er gert ráð fyrir byggingarreitum fyrir hesthús og gróðurhús á lóðinni. Eignin getur því hentað sérstaklega vel þeim sem vilja vera með hesta eða stunda ræktun samhliða búsetu eða ferðaþjónustu. 

Mýrarsel 2 er einstaklega falleg eign sem sameinar heimilislega og vandaða aðstöðu, glæsilegt spa-svæði og spennandi rekstrarmöguleika.
Stór eignarlóð, heimildir samkvæmt uppdrætti fyrir hesthúsi og gróðurhúsi og fallegt sveitaumhverfi gera eignina áhugaverða.

Nánari upplýsingar veitir Elka Guðmundsdóttir Fasteignasali, í síma 863-8813, tölvupóstur elka@fstorg.is.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (61)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Borgarheiði 23
Á einni hæð
Heitur pottur
Skoða eignina Borgarheiði 23
Borgarheiði 23
810 Hveragerði
144.4 m2
Raðhús
413
553 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Skoða eignina Háberg 24
Skoða eignina Háberg 24
Háberg 24
111 Reykjavík
143.5 m2
Raðhús
524
672 þ.kr./m2
96.500.000 kr.
Skoða eignina Víðidalur 24
Bílskúr
Á einni hæð
Skoða eignina Víðidalur 24
Víðidalur 24
260 Reykjanesbær
130 m2
Raðhús
312
715 þ.kr./m2
92.900.000 kr.
Skoða eignina Hraunbraut (Miðja) 6
Á einni hæð
Heitur pottur
Hleðslustöð
Hraunbraut (Miðja) 6
805 Selfoss
100.2 m2
Raðhús
413
618 þ.kr./m2
61.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin