Laugardagur 26. september
Fasteignaleitin
Skráð 26. sept. 2026

Lynghæð 1

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-210
200 m2
6 Herb.
4 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
186.900.000 kr.
Fermetraverð
934.500 kr./m2
Fasteignamat
160.500.000 kr.
Brunabótamat
120.050.000 kr.
Mynd af Guðlaugur Jónas Guðlaugsson
Guðlaugur Jónas Guðlaugsson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1991
Garður
Pallur
Á einni hæð
Sérinng.
Fasteignanúmer
2071465
Landnúmer
119150
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
1
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Upprunalegar
Raflagnir
Raflagnir endurnýjaðar í lofti alrýmissins
Frárennslislagnir
Upprunalegar
Gluggar / Gler
Gott viðhald, Um 30–40% glers var endurnýjað samhliða viðhaldi.
Þak
Málað, yfirfarið og ryðblettir lagfærðir. Þakið grunnað og sprautað með tveimur umferðum af þakmálningu.
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Nei
Upphitun
Hefðbundið ofnakerfi, en gólfhiti á baðherbergjum og í forstofu.
Inngangur
Sérinngangur
Guðlaugur J. Guðlaugsson, löggiltur fasteignasali og RE/MAX fasteignasala kynna í einkasölu:

Lynghæð 1, 210 Garðabæ.

Vel skipulagt, bjart og mikið endurnýjað 200,0 m² einbýlishús á einni hæð, þar af 29,0 m² rúmgóður bílskúr. Eignin stendur á fallegri og gróinni 739,0 m² lóð á rólegum og góðum stað í Garðabæ.

Húsið er teiknað af Pálmari Ólasyni arkitekt og einkennist meðal annars af mikilli lofthæð, stórum gluggum, björtu og rúmgóðu alrými og góðri tengingu við suður- og vestursvæði lóðarinnar. Frá húsinu og veröndinni er mikið og fallegt útsýni yfir Garðabæ og víðar.

Smelltu á hlekkinn til að skoða húsið í þrívídd

Bókið skoðun hjá Gulla í síma 661-6056 / gulli@remax.is

Helstu atriði
- Birt stærð 200,0 m², þar af 29,0 m² bílskúr.
- Einbýlishús á einni hæð.
- Þrjú svefnherbergi í dag, áður fjögur.
- Auðvelt að útbúa fjórða svefnherbergið að nýju með einum millivegg.
- Möguleiki er á að útbúa aukaherbergi í enda hins rúmgóða bílskúrs.
- Tvö baðherbergi, bæði með sturtu.
- Sér þvottahús.
- Bjart og rúmgott alrými með mikilli lofthæð.
- Eldhús miðsvæðis og opin tenging við stofu, borðstofu og sjónvarpsstofu.
- Stórir gluggar og mikil náttúruleg birta.
- Útgengi frá borðstofu á timburverönd sem snýr til suðurs og opnast til vesturs.
- Fallegt útsýni yfir Garðabæ og víðar.
- Gróin og vel hirt 739,0 m² lóð með verönd og skjólveggjum.
- Hellulagt og upphitað bílaplan.
- Miklar endurbætur og viðhald hafa farið fram á eigninni undanfarin ár.

Nánari lýsing: 
Forstofa: Góð aðkoma er að húsinu. Forstofa er með flísum á gólfi, gólfhita og fataskápum. Tvöföld viðar- og glerhurð skilur forstofu frá alrými hússins.
Gestasnyrting / baðherbergi: Inn af forstofu er baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, sturtuklefa, handlaug og salerni.
Alrými hússins er bjart og rúmgott með mikilli lofthæð. Á gólfi er harðparket og í lofti er loftadúkur með innfelldri LED-lýsingu. Við endurbætur var jafnframt sérstaklega hugað að hljóðvist rýmisins.
Stofan er rúmgóð og björt með stórum gluggum sem hleypa mikilli náttúrulegri birtu inn.
Hluti stofurýmisins var áður fjórða svefnherbergi hússins. Auðvelt er að útbúa það að nýju sem sérherbergi með uppsetningu á einum millivegg.
Borðstofan er sérstaklega björt með gluggum á þrjá vegu. Þaðan er útgengi á timburverönd með skjólveggjum. Veröndin snýr vel gagnvart sól til suðurs og er opin til vesturs. Þaðan nýtur góðs útsýnis yfir Garðabæ og víðar.
Eldhúsið er staðsett miðsvæðis í alrými hússins og tengir vel saman stofu, borðstofu og sjónvarpsstofu.
Eldhúsinnrétting er á móti hvor annarri með góðu skápa- og skúffuplássi. Flísar eru á milli efri og neðri skápa. Tvöfaldur bakaraofn er í vinnuhæð, spanhelluborð og kolasíuvifta. Gert er ráð fyrir innbyggðri uppþvottavél og ísskáp í innréttingu.
Sjónvarpsstofa: Frá borðstofu er gengið inn í rúmgóða og notalega sjónvarpsstofu sem tengist alrými hússins vel.
Svefnherbergi: Í húsinu eru þrjú svefnherbergi í dag. Hjónaherbergið er rúmgott með hvítum fataskápum. Hin tvö svefnherbergin eru einnig góð að stærð og er fataskápur í öðru þeirra.
Eins og áður segir er einfalt að endurheimta fjórða svefnherbergið með því að loka af hluta núverandi stofurýmis.
Aðalbaðherbergi: Baðherbergið er flísalagt á gólfi og veggjum. Þar er rúmgóð sturta með sturtugleri, innrétting með handlaug og góðu skápa- og skúffuplássi, spegill, baðskápur og efri skápur. Upphengt salerni og opnanlegur gluggi.
Sér þvottahús með flísum á gólfi, innréttingu með skolvaski og góðri aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara.

Bílskúrinn er 29,0 m², rúmgóður og með mikilli lofthæð. Þar er innrétting með skolvaski og gluggar bæði að framan- og aftanverðu. Innangengt er í bílskúrinn frá forstofu.
Stærð og skipulag bílskúrsins bjóða upp á ýmsa nýtingarmöguleika og meðal annars möguleika á að útbúa aukaherbergi í enda hans, sé þess óskað og að uppfylltum viðeigandi skilyrðum.

Lóð og umhverfi
Lóðin er 739,0 m², gróin, falleg og vel hirt. Við húsið er góð timburverönd með skjólveggjum og húsið stendur vel gagnvart sól.
Aðkoma að eigninni er góð og bílaplan er hellulagt og upphitað. Frá eigninni er fallegt og víðáttumikið útsýni yfir Garðabæ og víðar. 

Endurbætur og viðhald / Eigninni hefur verið vel við haldið og vel um hana hugsað af núverandi eigendum sem búið hafa í húsinu frá upphafi. Á árunum 2015–2023 var ráðist í umfangsmiklar endurbætur og viðhald.
Hitakerfi: Skipt var um hitastillikrana á ofnum og Heimeier-kranar frá Tengi settir í stað eldri Danfoss-krana.
Skipt var um miðstöðvarofna í þvottahúsi og á gestabaðherbergi.
Eldhús:  Eldhústæki endurnýjuð. Spanhelluborð og tveir AEG-bakaraofnar frá Ormsson settir í stað eldri tækja.
Fataskápar: í hjónaherbergi og barnaherbergi endurnýjaðir.
Gluggar og gler: Á þremur sumrum voru allar rúður hússins, að undanskildum háa stofuglugganum, teknar úr, alls 63 rúður. Gamalt kítti var fjarlægt úr fölsum og af gleri. Nýir glerlistar settir ásamt nýjum gúmmíþéttingum. Gluggar grunnaðir og málaðir. Um 30–40% glers var endurnýjað samhliða framkvæmdunum. Gler kom frá Íspan.
Hurðir: Útihurð og svalahurð endurnýjaðar og settar upp með þriggja punkta læsingum. Hurðir frá Glugga- og hurðasmiðju SB ehf.
Þak: Þak yfirfarið og ryðblettir lagfærðir. Þakið grunnað og sprautað með tveimur umferðum af þakmálningu. Verkið var unnið af Alexander Arnarson ehf.
Árið 2023 var ráðist í verulegar framkvæmdir innanhúss. 
Loft og lýsing í alrými: 
Eldri loftaklæðning fjarlægð. Einangrun í þaki yfirfarin og lagfærð. Ný og endurbætt rakasperra sett upp. Ný lagnagrind útbúin. Raflagnir endurnýjaðar fyrir 28 LED-loftljós. Nýju steinullarlagi komið fyrir í lagnagrind til að bæta hljóðvist. Nýr loftadúkur strengdur í loft alrýmis. Loftadúkur og frágangur frá Pons ehf. og LED-lýsing frá Rafvörum.
Baðherbergi: Aðalbaðherbergi endurnýjað að hluta, baðkar fjarlægt og komið fyrir sturtu með sturtuþili. Gólfhiti settur og flísar endurnýjaðar á gólfi og að hluta á veggjum. Nýtt salerni og handlaug sett upp ásamt nýjum blöndunartækjum við handlaug og sturtu.
Á gestabaðherbergi var settur upp nýr sturtuklefi, gólfhiti, salerni og blöndunartæki við handlaug. Blöndunartæki í sturtu yfirfarin og nýjar flísar lagðar á gólf.
Flísar á baðherbergjum og í anddyri frá Parka. Hreinlætistæki frá Tengi. Lagnavinna unnin af Lagnaþjónustu Þorsteins ehf.

Gólf og málning: Alrými og herbergi lögð nýju 8 mm harðparketi frá Birgisson. Húsið málað að innan í lok framkvæmdanna. Málning frá Sérefni og Málningu hf.

Nánari upplýsingar veitir: Guðlaugur J. Guðlaugsson löggiltur fasteignasali í síma 661- 6056 / gulli@remax.is

Vegna mikillar eftirspurnar vantar mig allar tegundir eigna á skrá. Hafðu samband og ég mun verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi 0,8%, ( 0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða ) og 1.6% (ef lögaðilar) af heildar fasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölur kr. 69.900.
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (54)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Langafit 24
Bílskúr
Á einni hæð
Skoða eignina Langafit 24
Langafit 24
210 Garðabær
190.6 m2
Einbýlishús
724
889 þ.kr./m2
169.500.000 kr.
Skoða eignina Blikastígur 16A
Bílskúr
Á einni hæð
Heitur pottur
Skoða eignina Blikastígur 16A
Blikastígur 16A
225 Garðabær
217.6 m2
Einbýlishús
514
758 þ.kr./m2
164.900.000 kr.
Skoða eignina Hraunbraut 22
Bílskúr
Hleðslustöð
Skoða eignina Hraunbraut 22
Hraunbraut 22
200 Kópavogur
252.6 m2
Einbýlishús
824
831 þ.kr./m2
210.000.000 kr.
Skoða eignina Austurkór 87
Bílskúr
Á einni hæð
Opið hús:27. sept. kl 16:00-17:00
Skoða eignina Austurkór 87
Austurkór 87
203 Kópavogur
250.8 m2
Einbýlishús
54
789 þ.kr./m2
198.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin