Virkilega góð 2ja herbergja endaíbúð, 67,4 fm á 1.hæð fjölbýli (byggt 1981) í Vesturbæ Reykjavíkur. Húið hefur verið mikið enurnýjað síðastliðin ár og í sumar var húsið múrað, skipt um valda glugga, skipt um járn á þaki og svalahandrið lagfærð ofl. . Eignin er á besta stað miðsvæðis í Vesturbænum.Nánari lýsingu má fá hjá fasteigansala. Halldór Freyr Sveinbjörnsson - 6932916 - halldor@fastgardur.isNánari lýsing:Anddyri: Komið er inn á rúmgóðan gang. Flísalagt gólf.
Eldhús: Hvít innrétting með góðu skápaplássi, eldavélasamstæðu og borðkrók. Parket á gólfi.
Stofa/borðstofa: Opin og björt, útgengt á svalir til suð-austurs, flísar á gólfi.
Baðherbergi: hvít innrétting og baðkar með sturtuaðstöðu, flísar í hólf og gólf.
Hjónaherbergi: Góður fataskápur með innbyggðu skrifborði, flísar á gólfi.
Þvottahús: Sameiginlegt þvottahús með þremur öðrum íbúðum er á hæðinni, þar er sameiginleg þvottavél.
Geymsla: Er 4,7 m2 og er í kjallara ásamt sameiginlegri hjóla og vagnageymslu.
Síðustu framkvæmdir að sögn seljanda. Útidyrahurð slípuð og lökkuð 2023
Tröppur að utan flotaðar 2023
Nýtt baðtæki 2024
Múrviðgerðir á ytra byrði hússins 2024
Málun steypu, tréverki (þakkantar gluggar og svalahurðir) 2024
Þak endurnýjað (þakjárn, túður, mannop og áfellur) verklok nóv 2023
Endurnýjun svalahandriða 2024
Glugga og glerskipti í stofuglugga 2024
Svalagólf endursteypt, fíltuð, sílanborin og máluð 2024
Niðurfallsrör endurnýjuð 2024
Áætluð verklok mánaðarmótin október-nóvember og er fullgreitt af seljanda.