Kasa fasteignir - 461-2010
Hulduholt 2 íbúð 104 - Virklega glæsileg og vönduð 140,7 fm 4 herbergja íbúð á fyrstu hæð í nýju fjölbýli í Holtahverfi. Bílastæði í bílakjallara fylgir eigninni.
Íbúðin er 128 fm, fjögurra herbergja og samanstendur af; inngangi, baðherbergi, þvottaherbergi, eldhúsi, stofu, tveimur barnaherbergjum og hjónaherbergi með auka baðherbergi inn af því.
- Íbúðinni fylgir 12,7 fm geymsla í kjallara (0013), svalir til suðurs (0112 – 6,9 m2) og verönd til norðurs (0117 – 21,1 m2), ásamt sérafnotahluta á lóð við suður hlið íbúðar.
- Eigninni fylgir hluti í sameign, samkvæmt kaflanum um sameign.
- Í bílakjallara fylgir eigninni eitt bifreiðastæði merkt B14.
- Birt flatarmál séreignar er 140,7 m2.
** ATH Tölvuteiknaðar myndir eru ekki af þessari íbúð og eru því einungis til viðmiðunar **
** Allar nánari upplýsingar og teikningar má fá á skrifstofu okkar **
Skilalýsing fjölbýlishúss við Hulduholt 2
Húsið er úr krosslímdu timbureiningum, einangrað að utan og klætt með alubond álklæðningu.
Bílastæði: Eitt stæði fylgir hverri íbúð í bílakjallara og sameiginleg stæði á malbikuðu bílaplani framan við hús.
Lyftur: Lyftur frá Héðinn/Schindler er í báðum stigahúsum.
Kjallari: Hjóla- og vagnageymsla er með steyptu gólfi með epoxy. Geymslur eru með loftræstar og er epoxy á gólfum.
Stigahús: Flísar eru á gólfum á jarðhæð teppi á stigum og stigapöllum. Hönnun stigahúsa er hlý og heimilisleg. Í stigahúsum er hljóðdúkur í loftum og innfeld lýsing.
Forstofa: Í forstofu eru fataskápar og flísar á gólfum.
Baðherbergi: Baðinnréttingar eru sérsmíðaðar af Húsheild/Hyrnu úr harðspón, hægt verður að velja úr ljósri og dökkri eik. Þrýstiopnun á innréttingu. Bekkplata úr steini. Spegill við innréttingu innfeld lýsing. Flísar á veggjum og gólfi. Vegghengt klósett, glerveggir í sturtu, innfeld blöndunartæki af vandaðri gerð. Hljóðdúkur í lofti innfelld lýsing.
Eldhús: Allar innréttingar eru sérsmíðaðar af Húsheild/Hyrnu úr harðspón, hægt er að velja um ljósa eða dökka eik. Bekkplötur eru úr stein. Skúffubrautir, hengsli eru af viðurkenndri og vandaðri gerð. Þrýstiopnun á innrétingu. Í eldhúsinnréttingu er svart keramikhelluborð með innbygðri viftu, bakaraofn,sambyggður bakarofn/örbylgjuofn, innbyggður ísskápur með fristihólfi innbyggð uppþvottavél og stálvaskur. Hljóðdúkur í lofti innfeld lýsing.
Herbergi: Skápar eru sérsmíðaðar af Húsheild/Hyrnu úr harðspón, hægt er að velja um ljósa eða dökka eik.Þrýstiopnun á skápum. Í herbergjum vinilparket með fiskibeinamunstri. Hljóðdúkur í lofti innfeld lýsing.
Þvottahús: Í þvotthúsi er þvottatækjainnrétting. Allar innréttingar eru sérsmíðaðar af Húsheild/Hyrnu úr harðspón, hægt er að velja um ljósa eða dökka eik. Þrýstiopnun á innréttingu. Í þvottahúsi er skolvaskur úr stáli. Flísar á gólfi. Hljóðdúkur í lofti innfeld lýsing.
Innihurðir: Eru sérsmíðaðar af Húsheild/Hyrnu, hægt er að velja um ljósa eða dökka eik. Innfelldar lamir í hurðum.
Upphitun: Íbúðirnar eru með gólfhita en í bílakjallara eru vatnshitablásarar.
Loftskiptakerfi: Loftskiptakerfi er í öllum íbúðum.
Raflögn: Öll raflögn er fullfrágengin þ.e. tengt í allar dósir og rofar komnir á sinn stað. Síma- og sjónvarpslagnir í stofurými og herbergjum. Kappalýsing er á baðherbergi og allrými, einnig fylgja loftljós í þvottahúsi og baðherbergi. Reiknað er með lögn fyrir hleðslustöð í bílastæði.
Íbúðir verða tilbúnar til afhendingar í Nóvember / Desember 2024
Byggingaraðili er Húsheild/Hyrna
Nánari upplýsingar veita:
Helgi Steinar á helgi@kasafasteignir.is eða í síma 666-0999.
Sigurpáll á sigurpall@kasafasteignir.is eða í síma 696-1006.
Sibba á sibba@kasafasteignir.is eða í síma 864-0054.