Gimli fasteignasala kynnir
Hrísrimi 5, 112 Reykjavík, sem er einstaklega falleg og björt
2ja herb. íbúð í Rimahverfi. Íbúðin er
á 3ju og efstu hæð með stórum
suður svölum, þar sem sólar nýtur allan daginn á björtum sumardögum.
Íbúðin er
61,3 fm að meðtalinni 4,4 fm geymslu í kjallara. Þvottahús er innan íbúðar.
Frábær eign fyrir fyrstu kaupendur.
Eignin Hrísrimi 5 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 204-0015, birt stærð 61.3 fm. Nánar tiltekið eign merkt 03-01, ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
NÁNARI LÝSING:Íbúðin er opin og björt og á öllum gólfum er fallegt samfellt harðparket, nema á baði og þvottahúsi. Í
anddyri er hvítur fataskápur. Í
eldhúsi er L laga hvít innrétting og eldhúskrókur undir stórum glugga. Opið er úr eldhúsi inn í stofu.
Stofan er með glugga á tvo vegu og úr henni er gengið út á suður svalir. Í
svefnherbergi er stór viðarlitur fataskápur. Í
baðherbergi er dúkur á gólfi, handklæðaofn og baðkar með gler-þili og sturtu. Undir vaski er hvít skúffu-innrétting og speglaskápur fyrir ofan.
Þvottahús er með dúk á gólfi og tengi fyrir þvottavél. Íbúðinni fylgir 4,4 fm
geymsla í kjallara. Þá er
sameiginleg hjóla- og vagnageymsla í kjallara.
Íbúðin hefur fengið gott viðhald á síðustu árum.
2024 Ný svalahurð
2021 Skipt um rafmagnsrofa og tengla
2021 Skipt um alla ofna nema í þvottahúsi
2020 Nýtt harðparket "Quick step" og hljóðeinangrandi dúkur undir
2019 Skipt um vask, innréttingu, salerni og handklæðaofn á baðherbergi.
Bílastæði er fyrir framan húsið og á sameiginlegu bílastæði Hrísrima 1 til 5 eru hleðslustöðvar fyrir rafbíla í fjórum stæðum.
Hrísrimi 5 er staðsteypt 3ja hæða fjölbýlishús með 9 íbúðum. Húsið Hrísrimi 1 til 5 stendur á 2.583 fm leigulóð.
Örstutt í grunn- og leikskóla og þá er flesta almenna þjónustu að finna í göngufæri.
Nánari upplýsingar veitir: ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR ELLERT S. 661-1121 EÐA Á SKRIFSTOFU S. 570-4800, ellert@gimli.is
Gimli fasteignasala leggur áherslu á traust, áreiðanleika og góða þjónustu.Það er okkar trú að það skipti öllu máli í fasteignaviðskiptum að viðskiptavinurinn fái trausta og góða þjónustu. Við hjá
Gimli höfum stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti í meira en fjóra áratugi. Hjá okkur starfa sérhæfðir og reyndir fasteignasalar sem sinna stórum sem smáum verkefnum af nákvæmni og þekkingu sem skilar árangri.
Hvar erum við?
Gimli Fasteignasala er staðsett á jarðhæð í Skipholti 35 í Reykjavík en einnig rekum við söluskrifstofu að Eyrarvegi 29. 2 hæð á Selfossi.
Við höfum opið frá 10-15 mánudaga til föstudaga. Sláðu á þráðinn eða líttu við hjá okkur í Skipholtinu næst þegar þú átt leið hjá. Við erum alltaf með heitt á könnunni. sími: 570 4800, tölvupóstur:
gimli@gimli.isGimli gerir betur...
Heimasíða Gimli fasteignasöluGimli á FacebookUm skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 2.700,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Teikningar sem fylgja lýsingu eignarinnar og myndum eru til viðmiðunar og ekki alltaf í samræmi við samþykktar teikningar af eigninni.
Myndir í auglýsingu eru í einkaeigu og er notkun þeirra með öllu óheimil án formlegs leyfis fasteignasala