RE/MAX, Garðar Hólm lgf. og Guðlaug Jóna lgf. kynna:
Glæsilegt 205 fm parhús á tveimur hæðum með frábæru útsýni við Grænlandsleið 20 í Grafarholti. Samkvæmt þjóðskrá er íbúðin sjálf 205 fm þar af bílskúr 38,8 fm. Búið er að samþykkja 29,2 fm byggingu við norður hluta húsins sem hægt er að gera tvö svefnherbergi í og er það inn í skráningu fasteignamats ríkisins (eignin er því skráð 234,2 fm). Stutt er í alla helstu þjónustu svo sem leikskóla, skóla og matvörubúð. Einnig rétt við frábæra náttúru, æðislegar gönguleiðir og golfvöll.
Nánari lýsing:
Neðri hæð:
Forstofa: Með stórum skáp með rennihurðum alveg upp í loft.
Hol: Með stórum skáp með rennihurðum og bókaskáp, möguleiki á að breyta í sjónvarpshol.
Herbergi: Rúmgott og bjart herbergi með stórum fataskáp með rennihurðum.
Baðherbergi: Fallega innréttað með stein borðplötu og handlaug. Stórum spegli, upphengdu salerni, baðkari, sturtu og innfelldum blöndunartækjum. Flísar á gólfum og að hluta til veggjum.
Þvottahús: Með fallegri innréttingu með skolvask og miklu skápa- og vinnuplássi. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð.
Bílskúr: Stór og rúmgóður bílskúr. Flísar á gólfi. Rafdrifin hurð. Bílskúrinn er 38,8 fm.
Stigi: Steyptur, parketlagður stigi milli hæða. Öryggisgler sem handrið eða veggur.
Gólfefni: Flísar á gólfum á allri neðri hæð.
Efri hæð:Stofa/borðstofa: Eru í björtu og opnu rými á efri hæð. Mikil lofthæð og gluggar á þrjá vegu. Frábært útsýni. Gengið er út á stóra verönd beggja vegna úr stofurými.
Eldhús: Stúkað af bakvið stigann en í sama opna rými og borðstofa/stofan. Falleg innrétting með stein borðplötu, bakarofni í vinnuhæð, gashelluborði, háf og innbyggðri uppþvottavél frá Miele. Gert er ráð fyrir tveimur ísskápum, eða ísskáp og frystiskáp. Mjög gott skápa- og vinnupláss.
Hjónaherbergi: Rúmgottt með góðum gluggum og stórum opnum skáp.
Baðherbergi: Fallega innréttað og nýlega endurnýjað. Það er með spegli, upphengdu salerni, "walk in" sturtu og innfelldum blöndunartækjum frá Vola. Flísar eru á gólfi og veggjum.
Gólfefni: Parket á gólfum.
Útisvæði: Suðvestan megin við húsið er lóðin afgirt. Mjög stór ao falleg nýleg timburverönd með lýsingu. Bæði heitur- og kaldur pottur. Frábært útsýni.
Nánari upplýsingar um eignina veita:
Garðar Hólm lgf. í síma 899-8811 eða gardar@remax.is og Guðlaug Jóna lgf. í síma 661-2363 eða gulla@remax.is