Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali og Lifum Heima fasteignasala kynna:
Íbúð 301, Arnarkletti 28, 310 Borgarnes. Björt og falleg 3ja herb. endaíbúð á 3. hæð í lyftuhúsi með sérinngangi og stórkostlegu útsýni.
** BÓKIÐ SKOÐUN **
Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali / s. 899 0720 / hrannar@lifumheima.isArnaklettur 28 er fjögurra hæða steinhús, byggt árið 2016 með alls sextán íbúðum, fjórar íbúðir á hverri hæð. Húsið er klætt með marmarasteining og er því viðhaldslítið. Tvær bílahleðslustöðvar við húsið. Sorpaðstaða er við enda bílaplans. Sameiginleg vagna- og hjólageymsla er í séreiningu við hlið hússins, alls 34,5 fm.
Íbúð 301 er 82,2 fm., sem telur forstofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi, geymslu og alrými þar sem er eldhús, borðstofa og stofa þaðan sem útgengt er á svalir með fallegu útsýni. Nánari lýsing:Inngangur: Sérinngangur frá opnum stigagangi. Lyftuhús.
Forstofa: Fataskápur og opið fatahengi. Millihurð. Flísar á gólfi.
Gangur: Parket á gólfi.
Eldhús/stofa: Eldhús, stofa og borðstofa mynda rúmgott og bjart alrými. L-laga eldhúsinnrétting úr eik með efri og neðri skápum og dökkri borðplötu, tengi fyrir uppþvottavél. Útgengt út á svalir með fallegu útsýni. Parket á gólfi.
Herbergi: Tvö svefnherbergi með fataskápum. Parket á gólfi
Baðherbergi: Snyrtilegt baðherbergi með eikar innréttingu og dökkri borðplötu. Vegghengt salerni. Walk-in sturta. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Veggflísar að hluta. Dökkar flísar á gólfi.
Geymsla: Innan íbúðar er 4,2 fm. geymsla. Rafmagnstengill. Parket á gólfi.
Virkilega falleg eign með fallegu útsýni í fjölskylduvænu hverfi. Frábær fyrstu kaup.
Nánari upplýsingar veita:
Hrannar Jónsson löggiltur fasteignasali / s.899-0720 / hrannar@lifumheima.is
Lifum heima fasteignasala / s.463 3333 / lifumheima@lifumheima.isUm skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:- Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
- Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
- Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
- Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
- Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.