RE/MAX & HERA BJÖRK Lgf. kynna: Rúmgóð og björt 2-3ja herbergja íbúð með aukinni lofthæð á 4.hæð í góðu fjölbýli með lyftu að Háteigsvegi 3. Íbúðin er vel staðsett í skemmtilegum og vinsælum íbúðarkjarna í miðborginni. Göngufæri í skóla, leikskóla og allar þær verslanir og þjónustu sem miðborgin hefur upp á að bjóða. Menningarsetrið Kjarvalsstaðir og útivistarparadísin við Klambrartún eru rétt handan við hornið með góðum göngu- og hjólaleiðum. Gott aðgengi að almenningssamgöngum og stutt í stofnbrautir.
* Húsið mikið endurnýjað árið 2005
* Sér inngangur af sameiginlegum svölum
* Aukin lofthæð
* Auka einka svalir
* Sérmerkt bílastæði.** SMELLIÐ HÉR til að fá söluyfirlitið sent samstundis **
** SMELLTU HÉR og skoðaðu HÚSIÐ í 3-D, þrívíðu umhverfi.**Eignin er samtals 94,2 m² að stærð og samanstendur af forstofu, góðu alrými (eldhús, borðstofa, stofa), tveim svefnherbergjum, baðherbergi, þvottahúsi og geymslu. Sér geymsla (7 fm) er í sameign í kjallara. Sameiginleg hjólageymsla inn af aðalinngangi á jarðhæð. Sér merkt bílastæði fyrir framan húsið.
Nánari lýsing:Forstofa: Skápur ásamt fatahengi, flísar á gólfi.
Alrými - eldhús/stofa/borðstofa: Komið er inn í rúmgott alrými með góðri lofthæð. Í eldhúsi er falleg og vönduð innréttingu með góðu skápaplássi og tengi fyrir uppþvottavél.
Stofa og borðstofa: í miðrými. Gott geymslupláss undir súð. Parket á gólfi.
Herbergi I: Rúmott með góðum skápum og parketi á gólfi.
Herbergi II: Var áður partur af stórri stofu. Bjart með fataskápum og útgengi út á svalir með fallegu útsýni til vesturs. Parket á gólfi. Hol inn af herbergi sem getur nýst sem fataherbergi eða skrifstofuaðstaða.
Baðherbergi: Er flísalagt í hólf og gólf, baðkar með sturtuaðstöðu og góð innrétting.
Þvottahús: Er innan íbúðar með flísum á gólfi, skolvask og glugga með opnanlegu fagi.
Gólfefni íbúðar: Parket og flísar.
Geymsla: Er 7 m² í kjallara. Sameiginleg hjólageymsla í sameign.
Bílastæði: Sérmerkt bílastæði fylgir eigninni fyrir framan húsið.
Háteigsvegur 3 var byggt árið er 1978. Árið 2005 var húsinu breytt og ofan á það byggð auka hæð og rishæð ásamt því að atvinnuhúsnæði var breytt í íbúðir á jarðhæð. Húsið er nú hluti af skemmtilegum íbúðarkjarna miðborginni. Íbúðin er vel staðsett á 4.hæð í lyftuhúsi í þessu vinsæla hverfi og í góðu göngufæri við skóla, leikskóla og allar þær verslanir og þjónustu sem miðborgin hefur upp á að bjóða. Menningarsetrið Kjarvalsstaðir og útivistarparadísin við Klambrartún eru rétt handan við hornið með góðum göngu- og hjólaleiðum. Gott aðgengi að almenningssamgöngum og stutt í stofnbrautir.
Húsið og sameignin virðist í ágætu ástandi og hefur viðhald verið gott og húsið mikið endurnýjað og lagfært.
Eftirfarandi framkvæmdir hafa átt sér stað á undaförnum árum:
2019 - nýtt parket.
Í 3D getur þú skoðað eignina hvar sem þú ert í þrívíðu umhverfi, ferðast auðveldlega á milli herbergja og kynnt þér rýmið.Allar nánari upplýsingar veita:
Salvör Þóra, löggiltur fasteignasali í síma 844-1421 eða á netfangið salvor@remax.is
Hera Björk, löggiltur fasteignasali í síma 774-1477 eða á netfangið herabjork@remax.is Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill því RE/MAX skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er af heildarfasteignamati - Einstaklingar 0,8% - Fyrstu kaupendur 0,4% - Lögaðilar 1,6%.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 2.700 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. sjá nánari upplýsingar um gjaldskrá á heimasíðu lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900 kr. m.vsk
_________________________________
Ertu í fasteignahugleiðingum?Ég hef starfað við Fasteignasölu frá janúar 2017 þegar ég ákvað að venda mínu kvæði í kross og hefja störf sem fasteignasali.
Ég legg mig fram um að veita persónulega og góða þjónustu, viðhalda góðu upplýsingaflæði og vanda vinnubrögð fyrir seljendur og kaupendur. Hjá mér færðu frítt sölumat og upplýsingar um ferlið án allra skuldbindinga.
Hafðu samband í dag í síma:
774-1477 eða á netfangið herabjork@remax.is