Kasa fasteignir 461-2010.Einholt 8E. Nokkuð endurnýjuð og falleg 4-5 herbergja 131,4 fm raðhúsaríbúð á tveimur hæðum.
Neðri hæð skiptist í : Forstofu, eldhús, stofu/borðstofu, snyrtingu, þvottahús og geymsla ásamt suður verönd.
Efri hæð skiptis í : Þrjú svefnherbergi, baðherbergi og geymslu. Forstofa: Flísar á gólfi og góður fataskápur með rennihurðum.
Eldhús: Er með nýlegri innréttingu, hvít háglans með góðu skúffu og bekkjarplássi. Öll eldhústæki eru nýleg, bakaraofn, innbyggður örbylgjuofn og span helluborð. Tvöfaldur ísskápur fylgir með við sölu ásamt uppþvottavél. Góður borðkrókur er í eldhúsi og harðparket á gólfi.
Stofa / borðstofa: Nokkuð rúmgóð, þar er búið að setja innfellda lýsingu. Úr stofu er útgengt á skjólgóða verönd er snýr til suðurs. Harðparket er á gólfi.
Svefnherbergi: Eru í dag þrjú talsins, tvö þeirra eru með góðum fataskápum og harðparket er á gólfi. Eignin er skráð með fimm svefnherbergjum og væri lítið mál að útfæra fleiri herbergi á efri hæð íbúðarinnar.
Baðherbergi: Hefur verið nýlega gert upp, ljós innrétting, baðkar með sturtutækjum og glervæng, upphengt salerni og handklæðaofn. Flísar eru á gólfi og hluta veggja.
Snyrting: Er á neðri hæð, þar hvít innrétting fyrir vask, upphengt salerni og flísar á gólfi.
Geymslur: Eru í dag tvær, geymsla á neðri hæð, þar eru flísar á gólfi og góðir skápar og hillur. Geymsla á efri hæð er með hillum og harðparketi á gólfi.
Þvottahús: Er með innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara, flísar eru á gólfi og opnanlegur gluggi.
- Hellulögð verönd með timbur skjólveggjum til suðurs.
- Nýtt þak árið 2022.
- Ofnalagnir hafa verið endurnýjaðar.
- Bæði baðherbergi hafa verið uppgerð.
- Nýlegt harðparket er á gólfi.
- Húsið er í góðu ástandi.
Nánari upplýsingar veita:Sigurpáll á sigurpall@kasafasteignir.is eða í síma
696-1006.
Helgi Steinar á helgi@kasafasteignir.is eða í síma
666-0999.
Sibba á sibba@kasafasteignir.is eða í síma
864-0054.
------------Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Kasa fasteignir benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald sýslumanns af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati eignar.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.