Fimmtudagur 2. júlí
Fasteignaleitin
Skráð 26. júní 2026

Furugrund 76

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Kópavogur-200
76.8 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
66.400.000 kr.
Fermetraverð
864.583 kr./m2
Brunabótamat
42.400.000 kr.
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
20609382
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sameiginlegur

**Eignin er SELD**

*Ertu með sambærilega eign og ert að hugsa um að selja? 
*Hafðu þá samband STRAX, mikill áhugi var á eigninni og þó nokkrir kaupendur á skrá hjá okkur 

GARÐATORG EIGNAMIÐLUN kynnir til sölu bjarta, fallega og hlýlega þriggja herbergja íbúð með suður svölum í fallegu fjölbýlishúsi á eftirsóttum og vinsælum stað Kópavogsmegin við Fossvogsdalinn. Íbúðin er staðsett á einstökum stað þar sem stutt er í skóla, leikskóla, íþróttaiðkun, útivistarsvæði, verslanir og alla almenna þjónustu.


Hér er um að ræða rúmgóða og vel skipulagða íbúð á 4.hæð (efstu) með 2 svefnherbergjum, rúmgóðu eldhúsi, fallegri stofu og sólríkum svölum. Fyrir framan húsið eru mörg sameiginleg bílastæði. 

Bókið einkaskoðun: Unnur s: 8660507 eða unnur@gardatorg.is 

Nánari lýsing: 
Komið er inn í opna forstofu með fataskáp og parketi á gólfi.
Stofa/borðstofa er opin og björt með parketi á gólfi.  Þaðan er gengið út á sólríkar og skjólgóðar svalir.
Eldhús er rúmgott með borðkrók, upprunalegri innrétting, góðu vinnu- og skápaplássi. Flísar á gólfi. Mjög fallegt útsýni er úr eldhúsi.
Herbergi I er með góðum nýlegum opnum fataskápum og parketi á gólfi.
Herbergi II er með parketi á gólfi og fataskáp.
Baðherbergi er með grárri innréttingu með skúffum, speglaskáp og baðkari með handsturtu. Þar er tengi fyrir þvottavél. Flísar eru meðfram baðkari og á gólfi.
Í kjallara er góð sérgeymsla, sameiginlegt þvottahús og sameiginleg hjóla- og vagnageymsla. Sameign hússins er snyrtileg. Stigagangur var teppalagður og málaður fyrir um 2 árum síðan. Við húsið er fallegur sameiginlegur garður.
Skv. FMR er búðin er alls skráð 76,8 fm að stærð. Geymsla er um 6fm og er að öllum líkindum ekki inni í skráningartölu FMR.

Héðan er stutt í Snælandsskóla, íþróttasvæði í og við Fagralund og leikskólana Fururgrund, Grænatún og Álfatún.

***Þetta er falleg og vel staðsett eign á barnvænum og vinsælum stað sem er vel þess virði að skoða***

Árið 2021 fóru fram ýmsar viðgerðir á húsinu:
  • Viðgerð á dreni 
  • Hús málað og gert við múr
  • Skipt um gler í gluggum þar sem þurfti
  • Þak málað og skipt um nagla
Nánari upplýsingar veitir:
Unnur Ýr Jónsdóttir, löggiltur fasteignasali, s: 8660507  eða unnur@gardatorg.is


Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Garðatorg eignamiðlun bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill því Garðatorg eignamiðlun skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar 
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Garðatorg eignamiðlun ehf
http://www.gardatorg.is

Myndir (34)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Lindasmári 45
Opið hús:06. júlí kl 17:15-17:45
Skoða eignina Lindasmári 45
Lindasmári 45
201 Kópavogur
92.1 m2
Fjölbýlishús
313
846 þ.kr./m2
77.900.000 kr.
Skoða eignina Lokastígur 7
IMG_7218.jpg
Skoða eignina Lokastígur 7
Lokastígur 7
101 Reykjavík
53.8 m2
Fjölbýlishús
211
965 þ.kr./m2
51.900.000 kr.
Skoða eignina Hraunbær 134
Skoða eignina Hraunbær 134
Hraunbær 134
110 Reykjavík
86.4 m2
Fjölbýlishús
514
751 þ.kr./m2
64.900.000 kr.
Skoða eignina Miklabraut 68
Skoða eignina Miklabraut 68
Miklabraut 68
105 Reykjavík
70.1 m2
Fjölbýlishús
211
769 þ.kr./m2
53.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin