Glæsilegt sumarhús, á frábærum stað við Sogið í Grímsnesi.Jón Smári Einarsson löggiltur fasteignasali og Fasteignaland ehf. kynna Sogsbakka 3, 805 Grímsnes- og Grafningshreppi, heilsárshús á eignarlóð í landi Ásgarðs.Sogsbakki 3 er glæsilegt heilsárshús sem stendur á stórri eignarlóð sem skráð er 5.700 m2 inni á skipulögðu sumarhúsasvæði í landi Ásgarðs. Um er að ræða fallega gróna lóð með víðáttumiklu útsýni. Húsið er skráð 89,2 m2 og var byggt árið 2007. Húsið stendur á forsteyptum einingum. Í þessu húsi er hitaveita og hiti í gólfum.
Í húsinu er rúmgott svefnloft, skráð 13,6 m2 (gólfflötur 26,4 m2) með góðri lofthæð. Svæðið og lóðin er afgirt með hliðum.Nánari lýsing:Gengið er inn í rúmgóða forstofu með flísalögðu gólfi og fataskápum. Inn af forstofu er gangur sem leiðir að alrými, svefnherbergjum og baðherbergi. Tvö rúmgóð svefnherbergi eru í húsinu, bæði með dúk á gólfum. Baðherbergið er með flísum á gólfi, sturtuklefa, upphengdu salerni og vandaðri innréttingu. Inn af baðherberginu er rúmgott þvottahús/geymsla með flísum á gólfi og útgengi út á vesturverönd þar sem heitur pottur er staðsettur. Stofa og eldhús eru í opnu, björtu rými með mikilli lofthæð. Eldhúsið er með fallegri hvítri U-laga innréttingu með granítborðplötum, góðum eldunartækjum og tengi fyrir uppþvottavél. Svefnloftið er aðgengilegt með góðum timburstiga og nýtist sem aukaherbergi eða geymslurými. Þar er opnanlegur gluggi og dúkur á gólfi. Gengið er út úr stofunni á stóran sólpall sem umlykur allt húsið, með fallegu útsýni, aðallega til suðurs og vesturs.
Lóð og aðstaða utandyra:Lóðin er eignarlóð, kjarri vaxin og afar falleg. Á lóðinni er hellulagt plan með hitalögn og malarplani með nægum bílastæðum, fallegur grasflötur sem hannaður var sem púttvöllur. Sérstök sláttuvél fylgir með til að slá grínin. Einnig er á lóðinni um 6 m
2 geymsluskúr (bjálkahús) og gróðurhús við hlið bílastæðis. Neðan við húsið liggur stigi niður frá pallinum í skjólgóðan og gróinn lund. Fánastöng er við húsið.
Annað:Möguleiki er að innbú fylgi með við sölu, utan persónulegra muna.
Staðsetning og nærumhverfi:Eignin er vel staðsett miðsvæðis á Suðurlandi, með stuttu aðgengi að náttúruperlum á borð við Þingvelli, Kerið, Gullfoss, Geysi, Skálholt og Laugarvatn. Þá er stutt í fjölbreytta þjónustu og afþreyingu s.s. veiði, sundlaugar, golf og gönguleiðir. Selfoss er í u.þ.b. 15 km fjarlægð og um 70 km eru til Reykjavíkur um Hellisheiði – lítið styttra ef ekið er um Nesjavallaleið.
Nánari upplýsingar veitir:Jón Smári EinarssonLöggiltur fasteigna- og skipasali / MPM, Viðskiptafræðingur.
jonsmari@fasteignaland.is860-6400 / 599-6706
Skoðunarskylda kaupanda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma
í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags.
Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Fasteignland, Skeifunni 2, 108 Reykjavík