BYR fasteignasala kynnir í einkasölu ÁRSKÓGAR 1A íbúð 102, 700 Egilsstaðir. Þriggja herbergja íbúð á neðri hæð í fjórbýlishúsi.
Góð staðsetning á vinsælum stað á Egilsstöðum, stutt í leikskóla, íþróttavöllinn, grunnskólann og sundlaugina. Smellið hér fyrir staðsetningu.Íbúð á jarðhæð í fjórbýli, byggt úr steypu árið 2006. Íbúðin er skráð 93.9 m² samkvæmt skráningu HMS.
Skipulag eignar: Forstofa, alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, tvö herbergi, baðherbergi og þvottahús/geymsla.
Nánari upplýsingar hjá BYR fasteignasölu | byr@byrfasteignasala.is | 483 5800 |Nánari lýsing: Forstofa, tvöfaldur fataskápur, flísar á gólfi.
Frá forstofu er
gangur sem leiðir inn í öll önnur rými eignarinnar.
Alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, parket á gólfi, útgengt frá borðstofu á timburverönd með skjólveggjum.
Eldhús, Brúnás innrétting, flísar á gólfi, helluborð, háfur, ofn í vinnuhæð, uppþvottavél (fylgir) og tvöfaldur ísskápur (fylgir), borðkrókur.
Herbergi I hjónaherbergi, sjöfaldur fataskápur, parket á gólfi.
Herbergi II, tvöfaldur fataskápur, parket á gólfi.
Baðherbergi, flísalagt í hólf og gólf, vaskinnrétting, spegill, upphengt salerni, sturta með einu gleri, handklæðaofn og gluggi.
Þvottahús, pláss fyrir eina vél undir borði, stálvaskur í borði, þvottasnúrur. Inn af þvottahúsi er
geymsla með hillum, greinatafla er í geymslu.
Árskógar 1A er fjórbýli, með tveimur íbúðum á jarðhæð og tveimur á efri hæð. Sér inngangur er í hverja íbúð.
Steypt stétt er við inngang hússins. Malbikað bílaplan, sameiginleg bílastæði, steypt sorptunnuskýli.
Gróin garður í sameign. Timburverönd á sérafnotafleti. Lóðin Árskógar 1, er sameiginleg 3.347,0 m² leigulóð í eigu Múlaþings.
Skráning eignar samkvæmt fasteignayfirliti HMS:
Fasteignanúmer 227-5949. Árskógar 1A.Stærð: Íbúð 93.9 m².
Brunabótamat: 53.100.000 kr.
Fasteignamat: 41.950.000 kr. Fyrirhugað fasteignamat 2026: 49.750.000 kr.
Byggingarár: 2006.
Byggingarefni: Steypt
Eignarhald:
Séreign 01.0102 Íbúð 93,9 Brúttó m². 01.0105 Verönd 10.4 Brúttó m².