ÁRBORGIR SELFOSSI S 482 4800 kynna: Laus til afhendingar við kaupsamning. Vönduð og vel hönnuð íbúð á efri hæð í fjórbýlishúsi í nýju hverfi rétt við Stekkjarskóla, á Selfossi. Húsin eru staðsteypt, klædd að utan með litaðri álklæðningu, þak er einhalla klætt með tvöföldu lagi af soðnum pappa. Gluggar og hurðir eru úr ál/tré frá IDEAL. Gluggar í stofu og eldhúsi eru gólfsíðir og eru íbúðirnar mjög bjartar og vel skipulagðar.
Íbúðin sem er á efri hæð er skráð 123,9m2 að stærð. Að innan skiptist hún í forstofu, þvottahús, baðherbergi, 3 svefnherbergi, stofu og eldhús auk geymslu. Íbúðinni er skilað fullbúinni, lóð skilast þökulögð og bílaplan er malbikað. Vandaðar sérsmíðaðar innréttingar eru í eldhúsi, baðherbergi og þvottahúsi. Fataskápar eru í öllum herbergjum og forstofu. Baðherbergi skilast flísalagt bæði gólf og veggir, þar er stór gólfsturta með innbyggðum tækjum. Harðparket er á gólfum utan votrýma sem eru flísalögð. Sér bílastæði og gert ráð fyrir hleðslustöð. Hjól/vagnageymsla er í sameign. Staðsetning er mjög góð en húsin standa rétt við nýjan grunnskóla. Vandaður frágangur og gott skipulag.
Nánari upplýsingar á skrifstofu Árborga. arborgir@arborgir.is

Dagsetning
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
Nothæfur samningur
23/11/2023
40.150.000 kr.
288.000.000 kr.
502.2 m2
573.476 kr.
Nei
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.