KOMIÐ ER SAMÞYKKT TILBOÐ Í EIGNINA SEM NÚ ER Í FJÁRMÖGNUNARFERLI
Fasteignasalan Valhöll og Elín Viðarsdóttir lgfs, elin@valholl.is, gsm. 695-8905 kynna í einkasölu, Einigrund 2, 300 Akranesi;
Fallega tveggja herb.íbúð á þriðju hæð í fjölbýlishúsi á fjölskylduvænum stað á Akranesi.
Íbúðin er vel skipulögð og 2024/2025 hafa töluverðar framkvæmdir átt sér þar stað.
- Eignin er skráð skv. HMS 57,9 fm en að auki eru óskráð 3,6 fm og 7,8 fm geymsla
- Samtals því 67,4 fm
- 3.hæð - óhindrað útsýni
- 2024/2025 Eignin hefur verið mikið endurnýjuð. Eldhús, baðherbergi, gólf, skápar, hurðar, veggir ofl.
- Þvottaaðstaða innan íbúðar
- 2025 Þak: Endurnýjaður þakpappi, þakjárn, kjölur, túður og skorsteinn tekinn
- 2024 Eldvarnarhurðar settar, skipt um glugga í geymslum á endunum (geymsla eignar), skipt um glugga í stigahúsum
- 2023 Útihurðir og útiljós endurnýjuð. 2019: Þakkantur endurnýjaður. 2019: Lóðréttar pípulagnir endurnýjaðar. 2014/2015: Láréttar pípulagnir endurnýjaðar. 2015: Sprunguviðgerð vesturhlið hússins og gluggar yfirfarðir. Malbikað plan. 2002: Málað og sprunguviðgert.
Eignin skiptist í : Forstofu, stofu, eldhús, herbergi, baðherbergi/þvottaaðstöðu og geymslu.
Nánari lýsing:
Forstofa: Af sameiginlegum stigagangi er gengið inn í parketlagða forstofu með fataskáp, forstofa opnast annars vegar inn á baðherbergið og hins vegar í alrými eignarinnar.
Gangur/hol: Parketlagt opið við alrými; stofu/eldhús.
Stofa/borðstofa: Parketlögð og björt. Gluggarnir eru stórir. Útgengi á skjólgóðar útsýnissvalir sem ná meðfram langhlið íbúðarinnar.
Eldhús: Opið við stofu. Parketlagt með hvítri innréttingu á 2 veggjum og góðu skápaplássi. Ofn í hæð, innbyggður ísskápur og uppþvottavél, falleg lýsing.
Svefnherbergi: Rúmgott. Parketlagt með skáp.
Baðherbergi: Flísalagt, vaskinnrétting með skúffum, upphengt salerni og sturtuklefi. Pláss og tengi er fyrir vélar.
Geymsla: Skráð 7,8 fm. Er í sameign hússins, í kjallra.
Þvottahús: Sameiginlegt þvottahús er í kjallara auk hjóla-og vagnageymslu.
Endurnýjun íbúðar 2024-2025. Nýtt gólfefni og gólflistar. Nýjar hurðir. Málað og sparslað. Veggur inní stofu einangraður. Nýjir fataskápar í forstofu og svefnherbergi. Nýjir sólbekkir. Gluggarnir lakkaðir. Ný eldvarnarhurð. Gólfefni sett á svalirnar. Skipt um alla breikera í rafmagntöflu. Nýjir ofnkranar í stofu og herbergi. Skipt um allt innlagnarefni. Eldhús: Ný eldhúsinnrétting og tæki. Settur upp falskur veggur og lagnir færðar. Nýjar raflagnir fyrir ofn og helluborð Baðherbergi: Allir veggir einangraðir og klæddir. Veggir og gólf flísalagt. Klósettkassi settur inní vegginn. Lagnir færðar til og uppfærðar þar sem þurfti. Handklæðaofn. Ný vifta með rakaskynjara. Ný innrétting, sturta, klósett og vaskur. Settar raflagnir fyrir þvottavél og þurrkara.
Lóð: Lóðin er sameiginleg.
Allar nánari upplýsingar veitir Elín Viðarsdóttir lgfs, elin@valholl.is, gsm. 695-89805
Samantekt: Falleg og einstaklega rúmgóð og vel skipulögð íbúð sem hefur fengið gott viðhald og verið mikið endurnýjuð
Eignin er vel staðsett í grónu hverfi á Akranesi í nánd við öll skólastig, íþróttamiðstöðina, sundlaug og þjónustu.