NÝTT Í SÖLU
Betri Stofan fasteignasala Borgartúni 30 og Jason Kristinn fasteignasali sími 775 1515, netfang: jason@betristofan.is kynna: Heklureitur - Laugavegur 170 - Glæsileg íbúð á 6. hæð (næst efstu) með þakgarði og möguleika á heitum potti. Íbúðin er með 2-3 svefnherbergjum, 2 baðherbergjum, þvottahúsi, búri innaf eldhúsi, stofa og eldhús í opnu rými með rennihurð út á 114 fm þakgarð. Bílskúr í bílageymslu fylgir með íbúðinni ásamt geymslu innaf. 2 stæði í bílageymslu fylgja íbúðinni, merkt B05 og B06
Heimasíða um HeklureitinnÍ eldhúsi er eyja, borðplötur ásamt bakplötu úr Quarts steini, sérframleiddur frá Santamargherita á Ítalíu. Vönduð tæki frá Siemens, sem koma úr StudioLine gerðinni en hún býður uppá úrval glæsilegra tækja sem gera eldamennskuna sérlega þægilega og ánægjuríka. Öll tæki hvort sem er fyrir eldhús eða baðherbergi eru valin með tilliti til gæða og endingar. Þema innréttinga í þessari íbúð er Náttúra auk spónlagðir efri skápa.
Hafstudio og Studio Homestead koma að hönnun innréttinga og eru þær sérsmíðaðar af ítalska fyrirtækinu Cubo Design úr Miton línunni þeirra. Kaupendur hafa tækifæri til að velja mismunandi liti og áferðir fyrir innréttingar sem og flísar á baðherbergi, komi þeir tímanlega að borði.
Íbúðirnar á efri hæðum, hafa einstakt útsýni til fjalla og yfir borgina.
Húsið er klætt með mismunandi litaðri álklæðningu ásamt Bambus sem gefur því lifandi yfirbragð og þarfnast lítils viðhalds.
Miðlæg staðsetning tryggir gott aðgengi að helstu umferðaræðum sem sparar tíma og peninga.
Örstutt í helstu stofnbrautir eins og Sæbraut, Kringlumýrabraut og Miklubraut.
Bókið skoðun hjá sérfræðingum um eignina:
Jason Kristinn Ólafsson, sími 775 1515 - löggiltur fasteignasali. - netfang: jason@betristofan.is
Dagrún Davíðsdóttir, sími 866 1763 / dagrun@betristofan.is
Guðbjörg Guðmundsdóttir sími 899 5533 / gudbjorg@betristofan.is