Fimmtudagur 9. júlí
Fasteignaleitin
Skráð 25. júní 2026

Vesturhópshólar

Jörð/LóðNorðurland/Hvammstangi-531
954.2 m2
7 Herb.
6 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
Tilboð
Brunabótamat
173.690.000 kr.
JR
Jón Rafn Valdimarsson
löggiltur fasteignasali
Margir Inng.
Fasteignanúmer
2134995
Húsgerð
Jörð/Lóð
Inngangur
Margir inngangar

Miklaborg kynnir: Sannkölluð náttúruperla með góðum húsakosti og víðsýni. Bæjarstæðið eitt það fallegasta á landinu eins og sjá má á www.vesturhopsholar.com og jörðin er mjög vel staðsett fyrir uppbyggingu ferðaþjónustu, einungis um 10 kílómetra frá Hvítserk sem er fjölfarnasti ferðamannastaðurinn á svæðinu.  Vesturhópshólar er landmikil (talinn 1.364 ha samkvæmt eldri mælingum) og þykir ein besta bújörðin í sveitinni, með mikið  ræktar- og beitiland. Á Hólafjalli er afréttur og  gott rjúpnaveiðiland. Á Vesturhópshólum var lengi stundaður hefðbundinn búskapur en undanfarið  hafa eigendur stundað þar hestamennsku og frístundabúskap. Bærinn  dregur nafn sitt af einkennandi hólum í fjallinu fyrir ofan bæinn en einkavegur frá Vatnsnesvegi liggur að bænum og er mikið næði fyrir umferð enda um átta hundruð metrar að Vatnsnesveginum. Saga fylgir húsinu en þar fæddist og var uppalinn Jón Þorláksson en hann var landsverkfræðingur, kaupmaður í Reykjavík, seinna formaður Íhaldsflokksins, fyrsti formaður Sjálfstæðisflokksins, fjármálaráðherra, forsætisráðherra og borgarstjóri í Reykjavík. (heimild Wikipedia)

Frá bæjarhlaðinu er stórbrotið útsýni yfir Vesturhóp, Vatnsdalsfjall, Víðidalsfjall og björgin á Sigríðarstaðasandi. Óskað er eftir tilboðum í jörðina.


Nánari upplýsingar veitir Jón Rafn Valdimarsson, sími: 6955520, netfang: jon@miklaborg.is.

Á túni við bæinn hefur verið útbúin 450 metra malarflugbraut fyrir einkaflugvélar með möguleika á 400 metra lengingu.  
Á jörðinni og í sveitinni í kring eru frábærir útivistarmöguleikar; reiðleiðir, gönguleiðir og möguleikar á stang- og skotveiði. Hólaá hlykkjast um jörðina og tilheyrir hluti hennar Vesturhópshólum. Á haustin gengur sjóbirtingur í ánna en ekkert veiðifélag er um hana.  Þegar gengið er upp Hólafjall frá bænum opnast stórbrotinn dalur með fallegri tjörn og háum þverhníptum hamraveggjum.
Íbúðahúsið er 180,5 m2 samkvæmt FMR með sex svefnherbergjum og hefur fengið gott viðhald, meðal annars var skipt um gler sumarið 2023, húsið málað og steypuviðgerðir að utan árið 2021. Önnur hús eru stór geymsla með bílskúr, fjárhús, hlaða og fjós sem nýtt hefur verið sem hesthús. Geymslan, bílskúrinn, fjárhúsið ásamt hlöðu og fjós þurfa viðhald.
Á jörðinni stendur einnig Vesturhópshólakirkja, byggð 1878 og kirkjugarður við hann. Kirkjan fylgir þó ekki jörðinni.
Vesturhópshólar eru um 36 kílómetra frá Hvammstanga og 55 kílómetra frá Blönduósi. Stutt er í Hópið, Borgarvirki, selalátur við Húnaflóa, svarta sanda, Vesturhópsvatn og nokkrar af þekktustu laxveiðiám landsins.
Upplýsingavefur um eignina: www.vesturhopsholar.com


Einstaklega falleg jörð sem eins og áður sagði getur nýst vel fyrir ýmis konar ferðaþjónustu en einnig er jörðin kjörin fyrir samheldinn hóp fjölskyldu eða vina sem vilja finna sér kyrrlátan og einstakan stað sem nýtist allt árið um kring.


Nánari upplýsingar veitir Jón Rafn fasteignasali í síma 695-5520 eða jon@miklaborg.is

Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (29)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Brekkulækur Ferðaþjónusta
Brekkulækur Ferðaþjónusta
531 Hvammstangi
1,407.9 m2
Jörð/Lóð
301026
Fasteignamat 142.839.000 kr.
Tilboð
Skoða eignina Sjávarlóð - Akravellir 2
Sjávarlóð - Akravellir 2
301 Akranes
798 m2
Jörð/Lóð
45 þ.kr./m2
35.900.000 kr.
Skoða eignina Laugargerðisskóli, Eyja- og Mikla holtshr.
Bílskúr
Laugargerðisskóli, Eyja- og Mikla holtshr.
342 Borgarnes
2,963.3 m2
Jörð/Lóð
96 þ.kr./m2
285.000.000 kr.
Skoða eignina Hraunvegur 24
Skoða eignina Hraunvegur 24
Hraunvegur 24
851 Hella
Jörð/Lóð
4.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin