STOFN FASTEIGNASALA KYNNIR: Einstaklega vandaða og bjarta fjögurra herbergja endaíbúð á 5.hæð Með stórbrotnu útsýni yfir Elliðavatn og víðar í Vallakór 6B, 203 Kópavogur. Eigninni fylgja tvö sérmerkt bílastæði í lokuðum bílakjallara og rúmgóðar, yfirbyggðar svalir með útgengi frá stofu og hjónaherbergi. Lyfta er í húsinu og möguleiki á rafbílahleðslu. Bílaþvottaaðstaða er í bílakjallara. Samtals birt stærð séreignar er 127,0 fermetrar. Eignin er vel staðsett, þar sem stutt er í alla þjónustu. Í göngufæri er matvörubúð, grunnskóli, leikskóli og Kórinn (íþróttamiðstöð HK).Nánar tiltekið eign merkt 05-02, fastanúmer 235-4739 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi stærð íbúðar 120,8 fm. Eigninni tilheyrir geymsla (0068) birt stærð 6,2 fm og yfirbyggðar rúmgóðar svalir, stærð 21,1 fm. *Smelltu hér til að skoða myndband um eignina**Smelltu hér til að sækja söluyfirlit*- Tvö sérmerkt bílastæði í bílakjallara
- Lyfta í húsi
- Rúmgóðar yfirbyggðar svalir með góðu útsýni
- Hjónaherbergi með fataherbergi
- Góð staðsetning
Eignin skiptist í: Forstofu, stofu og eldhús í alrými, hjónaherbergi með fataherbergi innaf, tvö barnaherbergi, baðherbergi með tengi fyrir þvottavél, stórar yfirbyggðar svalir.
Nánari lýsing:Forstofa: Rúmgóð forstofa, mjög gott skápapláss, flísar á gólfi.
Stofa/borðstofa: Stofa og eldhús eru saman í rúmgóðu alrými, stofan er björt og með útgengt út á stórar svalir sem eru yfirbyggðar, parket á gólfi.
Eldhús: Með hvítri HTH innréttingu, gott skápapláss, eyja er límd við og því hægt að fjarlægja eða færa, parket á gólfi.
Hjónaherbergi: Með fataherbergi innaf, útgengt út á stórar yfirbyggðar svalir, parket á gólfi.
Svefnherbergi 1: Rúmgott, með fataskáp og parket á gólfi.
Svefnherbergi 2: Rúmgott, með fataskáp og parket á gólfi.
Baðherbergi: Með hvítri HTH innréttingu, gott skápapláss. Flísalagt með sturtu, vegghengdu salerni, tengi fyrir þvottavél og þurrkara, handklæðaofn.
Svalir: Stórar og yfirbyggðar með svaladyrum bæði í stofu og hjónaherbergi.
Geymsla: Innan sameignar, 6,2 fm
Bílastæði: Tvö bílastæði merkt B77 og B78 í bílageymslu, hægt að hlaða rafbíl í gegnum 32amp tengil á vegg, í bílageymslu er einnig þvottastæði.
Hjóla- og vagnageymsla: Sameiginleg innan sameignar.
Nánari upplýsingar veita:Hallveig Jónsdóttir, Nemi í löggildingu, í síma
699-0496, netfang
hallveig@stofnfasteignasala.isBenedikt Ólafsson, Löggiltur fasteignasali, í síma
661-7788, netfang
bo@stofnfasteignasala.isVið hjá STOFN Fasteignasölu setjum þig í fyrsta sætið – með heilindum, metnaði og persónulegri þjónustu.
Það er okkur sannur heiður að fá að vera fasteignasalinn þinn.
STOFN Fasteignasala – Setjum þig í fyrsta sætið.