Laugardagur 31. janúar
Skráð 27. jan. 2026

Krókamýri 68

ParhúsHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-210
172 m2
6 Herb.
4 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
159.700.000 kr.
Fermetraverð
928.488 kr./m2
Fasteignamat
137.800.000 kr.
Brunabótamat
93.700.000 kr.
Mynd af Jóhanna Kristín Gústavsdóttir
Jóhanna Kristín Gústavsdóttir
Byggt 1994
Þvottahús
Garður
Bílskúr
Sérinng.
Fasteignanúmer
2213289
Húsgerð
Parhús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
2
Númer íbúðar
1
Svalir
Upphitun
Danfoss
Inngangur
Sérinngangur
Byggingarstig
7 - Fullgerð bygging
Matsstig
7 - Fullgerð bygging

 


***NÝTT Á SKRÁ***

Húsaskjól og Jóhanna Gustavsdóttir löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu: Fallegt og fjölskylduvænt parhús á tveimur hæðum í grónu og vinsælu hverfi í Garðabænum að Krókamýri 68. Húsið er vandað og hefur fengið mjög gott viðhald. Gengið er úr stofu út á rúmgóðan pall sem er með yfirbyggðu skyggni að hluta til og skjólveggjum. Garðurinn er gróin og skjólgóður sem snýr í suðvestur og er afgirtur. Heitur pottur er á pallinum og í garðinum er 14,9 fm geymsluskúr sem er með rafmagni.    
 

SMELLTU HÉR TIL AÐ SKOÐA VIDEO AF EIGNINNI

Húsið er skráð 171,7 fm að stærð og þar af er bílskúr með geymslu innaf skráður 28,0 fm að stærð. Húsið er á tveimur hæðum og komið er inn á aðalhæðina þar sem er forstofa, gestabaðherbergi með sturtu, eldhús, borðstofa-og stofa, þvottahús og þaðan er innangengt í bílskúrinn. Steyptur stigi er upp á efri hæðina og þar er komið upp í rúmgott hol sem er með góðri lofthæð sem tengir saman fjögur svefnherbergi og tvö þeirra eru með aðgengi að geymslulofti sem hægt er að nota sem leik-eða geymslurými . Út frá holinu á efri hæðinni er útgengt út á rúmgóðar þaksvalir sem möguleiki er á að byggja yfir og stækka þannig húsið. Drög að stækkun geta fylgt með.  

Nánari upplýsingar veitir Jóhanna Gustavsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 698-9470, netfang: johanna@husaskjol.is 

Nánari lýsing á eign:

Gólfefni hússins eru flísar og parket.

Neðri hæð:
Komið er inn á aðalhæðina í forstofu sem er með rúmgóðum fataskápum úr ljósum við sem ná upp í loft. Innaf forstofu er gestabaðherbergi sem er flísalagt í hólf og gólf með rúmgóðri sturtu, upphengdu salerni, innrétting úr dökkum við, handklæðaofn og opnanlegur gluggi. Síðan er gengið inn í hol og á hægri hönd er þvottahúsið sem er með hvítri innréttingu, borðplötu og skolvask. Gengið er inn í bílskúrinn í framhaldi af þvottahúsinu. Bílskúrinn er með geymslu innaf sem er með opnanlegum gluggum, epoxý á gólfi, rafdrifin bílskúrshurð og útgengi út í bakgarðinn. Eldhúsið er með sérsmíðaðri innréttingu úr ljósum við sem er með efri-og neðri skápum og flísum á milli og mjög góðu skápaplássi. Borðplötur eru úr kvartsteini, innbygggður ísskápur, span helluborð, vifta með útsogi, nýlegur Miele ofn-og örbylgjuofn í vinnuhæð og borðkrókur með gluggum á þrjá vegu. Borðstofan-og stofan er eitt opið og bjart rými með fallegum stórum gluggum. Úr stofu er gengið er út á rúmgóðan pall og garðinn sem snýr í suðvestur og er með yfirbyggðu skyggni að hluta til og hellulagðri stétt sem er með hita í að gönguleiðinni að heitapottinum. Skjólveggur með innbyggðri lýsingu umlykur heitapottinn. Garðurinn er skjólgóður, gróinn með grasblett að hluta til, litlum matjurtagarði og er afgirtur. 

Efri hæð:

Gengið er upp steyptan stiga sem er parketlagður á efri hæðina úr og komið inn í bjart hol sem er með góðri lofthæð og innbyggðum skápum úr dökkum við. Útgengt er út á rúmgóðar þaksvalir sem möguleiki er á að byggja yfir og stækka þannig húsið. Drög að stækkun geta fylgt með. Svefnherbergin eru 4, öll með góðri lofthæð og góðum fataskápum. Í tveimur herbergjanna er aðgengi að rislofti sem er með glugga og því hægt að nota sem leikrými eða geymslur. Fallegt og endurnýjað baðherbergi sem er með flísum á gólfi og hluta af veggjum, rúmgóður sturtuklefi sem er með glerhurð, upphengt salerni og handklæðaofn. Hvít sérsmíðuð baðinnrétting með góðu skápaplássi og granítborðplötu. Mikil lofthæð er á baðherberginu og þakgluggi sem gefur góða birtu. 

Falleg aðkoma er að húsinu, rúmgott hellulagt bílaplan með snjóbræðslu. Gróin afgirtur garður sem er mjög fjölskyldu-og dýravænn. Snýr í suðvestur bakatil með góðum palli sem er með yfirbyggðu skyggni að hluta til og skjólveggjum, heitum potti og geymsluskúr.

Hér er um að ræða fjölskylduvænt og vandað 6 herbergja parhús í grónu og vinsælu hverfi í Mýrinni í Garðabænum þar sem sem stutt er í skóla-,leikskóla, íþróttir, sund og alla helstu verslun, þjónustu og fallegar gönguleiðir.  
Allar nánari upplýsingar og bókun skoðunar veitir Jóhanna Gustavsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 698-9470, netfang: johanna@husaskjol.is

 

Fylgdu Húsaskjóli á TikTok

Húsaskjól fasteignasala - af því að þín fasteign skiptir máli

Ertu í söluhugleiðingum? Smelltu hér til að fá frítt verðmat
Ertu að leita að sambærilegri íbúð? Smelltu hér til að skrá þig á kaupóskalistann okkar

Fylgdu okkur á Instagram
Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um okkur að segja
Hvað er í gangi á fasteignamarkaðnum? Skráðu þig á Fréttaskot Húsaskjóls

Húsaskjól advices potential buyers who do not speak or read icelandic to have a translator present when they view and sign an offer,  sales agreement and other documents relating to the purchase of the property.​ 

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Húsaskjól fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.   

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - fast gjald.  Sjá vefsíðu viðkomandi lánastofnanna
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði

DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
22/10/201040.150.000 kr.43.000.000 kr.171.7 m2250.436 kr.Nei
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Háhæð 7
Skoða eignina Háhæð 7
Háhæð 7
210 Garðabær
164.7 m2
Raðhús
613
908 þ.kr./m2
149.500.000 kr.
Skoða eignina Vetrarbraut 2-4 íb313
Bílastæði
Opið hús:01. feb. kl 13:00-14:00
Vetrarbraut 2-4 íb313
210 Garðabær
126.3 m2
Fjölbýlishús
413
1147 þ.kr./m2
144.900.000 kr.
Skoða eignina Vorbraut 1
Bílskúr
Opið hús:01. feb. kl 12:00-12:30
Skoða eignina Vorbraut 1
Vorbraut 1
210 Garðabær
136.3 m2
Fjölbýlishús
322
1173 þ.kr./m2
159.900.000 kr.
Skoða eignina Brekkubyggð 38
Bílskúr
Opið hús:02. feb. kl 16:00-16:30
Eldhúsið er rúmgott
Skoða eignina Brekkubyggð 38
Brekkubyggð 38
210 Garðabær
171 m2
Raðhús
513
981 þ.kr./m2
167.700.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin