BYR fasteignasala kynnir í einkasölu HLÍÐARGATA 16 efri hæð, 740 Neskaupstaður.
Fjögurra herbergja íbúð með sér inngangi á efri hæð í tvíbýlishúsi. Smellið hér fyrir staðsetningu. Húsið er steypt, byggt árið 1947. Eignin skiptist í íbúð 110.0 m² og bílskúr 30.0 m² , stærð samtals 140.0 m² samkvæmt skráningu HMS.
Skipulag eignar: Anddyri, tvö barnaherbergi, eldhús, búr, þvottahús, hjónaherbergi og fataherbergi, baðherbergi, gangur/hol, stofa og stakstæður bílskúr.
Nánari lýsing: Anddyri, flísar á gólfi.
Herbergi I, tvöfaldur fataskápur, parket á gólfi.
Herbergi II, tvöfaldur fataskápur, parket á gólfi.
Herbergi III, parket á gólfi og fataherbergi inn af með lausum skápum, þar er gluggi.
Hol/gangur sem leiðir inn í aðrar vistaverur hússins, notað sem borðstofa.
Eldhús, eldri innrétting, helluborð, ofn og háfur, uppþvottavél fylgir og ísskáp í innréttingu (getur mögulega fylgt), parket á gólfi.
Inn af eldhúsi er búr með hillum og glugga, þar er nýlegur vatnskútur, steypt gólf.
Þvottahús, steypt gólf, pláss fyrir tvær vélar á gólfi, hillur, vantar hurð á rýmið.
Baðherbergi, nýlega uppgert; flísar á gólfi, heill sturtubotn og eitt sturtugler, fíbóplötur í sturtuhorni og baðplötur á veggjum.
Hvít vaskinnrétting og speglaskápur frá Bauhaus. Upphengt salerni, gluggi.
Stofa, rúmgóð með gluggum á tveimur hliðum, parket á gólfi.
Gólfefni: Harðparket er á stofu, borðstofu, gangi/holi, eldhúsi og svefnherbergjum. Flísar eru á anddyri og baðherbergi. Steypt málað gólf í búri og þvottahúsi.
Bílskúr, steypt gólf, nýleg innkeyrsluhurð, gönguhurð. Búið að einangra og plasta í loft. Rafmagn.
Rafmagnsofn notaður á veturnar til að halda frostfríu. Þarf að fara í múrviðgerð á horni hússins sem snýr að næstu lóð.
Hlíðargata 16 er steinsteypt hús á tveimur hæðum, valmaþak, bárujárn á þaki, timburgluggar og hurðar.
Lóð er gróin og afgirt, steypt stétt liggur að húsi, timburverönd er við inngang hússins sem er sérafnotaréttur íbúðar 201.
Þakrými 0301 yfir íbúð 0201 er fylgirými þeirrar íbúðar og hafa eigendur þeirrar íbúðar einkaafnot af þakrýminu.
Lóðin er 519.0 m² leigulóð í eigu Fjarðabyggðar.
Skráning eignarinnar hjá HMS:
Fastanúmer 216-9193. Hlíðargata 16.Stærð: 01.0201 Íbúð 110 m². 02.0101 Bílskúr 30.0 m². Samtals 140 m².
Brunabótamat: 57.630.000 kr.
Fasteignamat: 36.350.000 kr. Fyrirhugað fasteignamat 2026: 37.650.000 kr.
Byggingarár: Íbúð 1947.
Byggingarefni: Steypa.