STOFN FASTEIGNASALA KYNNIR:Fallega, bjarta og vel skipulagða
99,6 fm 3ja herbergja íbúð með sérmerktu stæði í lokaðri bílageymslu í snyrtilegu fjölbýli við
Lynggötu 2 í Garðabæ. Sér
afnotareitur er að framanverðu við íbúðina sem eykur notagildi eignarinnar og gefur skemmtilega tengingu við útisvæði. Íbúðin er á fjölskylduvænum stað með leiksvæði fyrir utan húsið og fallegu útisvæði í næsta nágrenni. Íbúðin er á
fjölskylduvænum stað með leiksvæði fyrir utan húsið og fallegu útisvæði í næsta nágrenni. Stutt er í skóla, leikskóla, þjónustu og fallegar gönguleiðir.
Ásett verð: Krónur 84.700.000.- Nánari upplýsingar og bókun skoðunar:Benedikt Ólafsson, löggiltur fasteignasali og félagi í Félagi fasteignasala
Sími:
661 7788Netfang:
bo@stofnfasteignasala.is*Smelltu hér til að skoða myndband um eignina**Smelltu hér til að sækja söluyfirlit*Sölupunktar eignar:• Björt og rúmgóð 3ja herbergja íbúð
• Sérmerkt stæði í lokaðri bílageymslu
• Byggð árið 2017
• Góð staðsetning í fjölskylduvænu hverfi
• Stutt í skóla, leikskóla, þjónustu og útivist
• Góðar samgöngur og ný tenging frá Urriðaholti út á Flóttamannaveg
Eignin skiptist í:Forstofu, eldhús, stofu/borðstofu, hjónaherbergi, svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, sérgeymslu og sérmerkt stæði í bílageymslu.
Nánari lýsing:Forstofa:Snyrtileg forstofa með góðu skápaplássi, flísar á gólfi.
Eldhús:Fallegt og vel skipulagt eldhús með snyrtilegri innréttingu og góðu skápaplássi. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél eru í eldhúsi. Eldhúsið er í opnu og góðu flæði við stofu og borðstofu, parket á gólfi.
Stofa/borðstofa:Bjart og rúmgott alrými með góðri birtu, notalegu flæði og útgengi á stórar svalir. Fallegt gólfefni er á rýminu sem gefur íbúðinni hlýlegt og snyrtilegt yfirbragð.
Hjónaherbergi:Mjög rúmgott og bjart hjónaherbergi með góðu skápaplássi. parket á gólfi.
Svefnherbergi:Gott svefnherbergi með parket á gólfi, herbergið nýtist vel sem barnaherbergi, gestaherbergi eða vinnuaðstaða.
Baðherbergi:Snyrtilegt baðherbergi, flísalagt í hólf og gólf. Þar er góð innrétting, handlaug, salerni, sturta með glervegg og handklæðaofn.
Þvottahús:Þvottahús er innan íbúðar.
Sérgeymsla:Sérgeymsla fylgir eigninni.
Sameign / hjóla- og vagnageymsla:Sameign er snyrtileg og þar er m.a. sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.
Bílageymsla:Sérmerkt stæði í lokaðri bílageymslu fylgir eigninni.
Staðsetning:Staðsetning eignarinnar er mjög góð í vinsælu og fjölskylduvænu hverfi í Garðabæ. Stutt er í skóla, leikskóla, verslanir og helstu þjónustu, auk þess sem falleg náttúra, góðar gönguleiðir og Urriðavatn eru í næsta nágrenni.
Samgöngur á svæðinu hafa jafnframt tekið framförum með nýrri tengingu frá Urriðaholti út á Flóttamannaveg, sem eykur aðgengi og bætir flæði til og frá hverfinu.
Nánari upplýsingar veitir
Benedikt Ólafsson, löggiltur fasteignasali og félagi í Félagi fasteignasala, í síma
661 7788 eða á netfanginu
bo@stofnfasteignasala.is.Við hjá STOFN Fasteignasölu setjum þig í fyrsta sætið – með heilindum, metnaði og persónulegri þjónustu.
Það er okkur sannur heiður að fá að vera fasteignasalinn þinn.
STOFN Fasteignasala – setjum þig í fyrsta sætið.