Hraunhamar og Valgerður Ása löggiltur fasteignasali kynna fallega 3ja herbergja íbúð á 2. hæð á þessum frábæra stað í Hvömmunum í Hafnarfirði.
Íbúðin er skráð 89,4 fm þar af er 5,2 fm geymsla. Falleg og vel skipulögð eign á rólegum og góðum útsýnisstað í Suðurbæ Hafnarfjarðar. Stutt er í alla helstu þjónustu þ. á m. leik- , grunn og framhaldsskóla og fallegar gönguleiðir. Nánari lýsing: Komið er inn í flísalagða
forstofu með rúmgóðum fataskáp.
Eldhús er flísalagt með fallegri innréttingu og góðum borðkrók.
Stofa er björt og rúmgóð og þaðan er utangengt út á stórar norðvestur svalir. Harðparket á gólfum í stofu.
Baðherbergi er flísalagt með baðkari og sturtuaðstöðu.
Hjónaherbergi er rúmgott með innbyggðum fataskápum og parketi á gólfi.
Gott
barnaherbergi með parketi á gólfi.
Skv. eigendum er búið að endurnýja:Nýlegt harðparket á gólfum í stofu/borðstofu og báðum svefnherbergjum, öll herbergi og loft máluð.
Gardínur í öllum gluggum endurnýjaðar 2021.
Eldhúsinnrétting endurnýjuð, ný borðplata, blöndunartæki og eldavél 2023.
Baðinnrétting, blöndunartæki og klósett endurnýjað 2024.
Á hæðinni fyrir neðan er sameiginlegt þvottahús og í kjallara er sérgeymsla með góðum vegghillum. Í kjallara er einnig reglubundin sameign/hjólageymsla. Stigagangur er snyrtilegur.
Þetta er falleg og vel skipulögð eign sem vert er að skoða.Nánari upplýsingar veitir Valgerður Ása Gissurardóttir löggiltur fasteignasali s. 791 7500 vala@hraunhamar.is
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Hraunhamar fasteignasala vill benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga fyrir nánari ástandsskoðun.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – kr. 2.700 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. þjónustusamningi
Hraunhamar er elsta fasteignasala Hafnarfjarðar, stofnuð 1983.
Hraunhamar, í fararbroddi í rúm 40 ár. – Hraunhamar.is