Mánudagur 2. júní
Fasteignaleitin
Skráð 22. maí 2025
Deila eign
Deila

Hringbraut 36

HæðHöfuðborgarsvæðið/Hafnarfjörður-220
79.3 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
61.900.000 kr.
Fermetraverð
780.580 kr./m2
Fasteignamat
60.000.000 kr.
Brunabótamat
35.600.000 kr.
Mynd af Kristján Þórir Hauksson
Kristján Þórir Hauksson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1954
Þvottahús
Garður
Fasteignanúmer
2076084
Húsgerð
Hæð
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
búið að endurnýja að hluta
Raflagnir
Endurnýjað
Frárennslislagnir
Endurnýjað að hluta í baðherbergi efri hæðar og eldhúsi
Gluggar / Gler
nýlegt að hluta
Þak
Ekki vitað
Upphitun
Hitaveita
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Lind fasteignasala / Kristján Þórir Hauksson lögg. fasteignasali kynnir fallega og vel staðsetta 3ja herbergja íbúð með sérinngangi í tvíbýli við Hringbraut 36 í Hafnarfirði. Íbúðin er alls 79,3 fermetrar að stærð. Íbúðin er vel skipulögð með rúmgóðum herbergjum og þónokkuð endurnýjuð. Má þar m.a. nefna að eldhús er nýlega endurnýjað ásamt því að búið er að endurnýja baðherbergi og gólfefni utan forstofu. Þá er búið að endurnýja skólplagnir frá húsi og út í brunn (árið 2017) og þak og þakrennur. Auk þess eru rafmagnstöflur nýlegar. 

Lóðin er 600,0 fermetrar að stærð og að mestu sameiginleg. Sameiginleg verönd og opinn geymsluskúr/áhaldaskúr á lóð. Tyrfður garður með fallegum trjágróðri. Hellulögð og steypt stétt að húsi. 

Nánari lýsing:
Forstofa: Flísar á gólfi. Sérinngangur í íbúð.
Hol: Með harðparketi á gólfi. Gengið er inn í öll rými frá holi.
Geymsla I: Er staðsett inn af holi.
Stofa: Er rúmgóð með harðparketi á gólfi. Gluggi til norðvesturs.
Eldhús: Er endurnýjað á smekklegan máta. Harðparket á gólfi og falleg hvít sprautulökkuð eldhúsinnrétting. Stál Samsung USA kæliskápur, stál bakaraofn, stál örbylgjuofn, spansuðu helluborð og tengi fyrir uppþvottavél. Góður borðkrókur og gluggi til suðvesturs.
Svefnherbergi I: Er rúmgott með harðparketi á gólfi, opnum klæðaskápum á heilan vegg og glugga til norðvesturs.
Svefnherbergi II: Er rúmgott með harðparketi á gólfi, skápum og glugga til vesturs.
Baðherbergi: Er endurnýjað, með flísum á gólfi og hluta veggja. Flísalögð sturta með glerþili, handklæðaofn og falleg innrétting við vask. Upphengt salerni og gluggi til vesturs.
Þvottaherbergi: Er sameiginlegt á jarðhæð hússins. Gengið beint inn í frá íbúð. Tengi fyrir þvottavél/þurrkara og gluggi til suðvesturs. Góðar hillur, vinnuborð og skúffur.
Geymsla II: Er köld undir útitröppum. Inngengt fyrir framan inngang inn í íbúð.

Staðsetning eignarinnar er afar góð á eftirsóknaverðum stað við Hringbraut í Hafnarfirði þaðan sem stutt er í skóla á öllum skólastigum (leikskólinn Brekkuhvammur, Öldutúnsskóli og Flensborgarskólinn í Hafnarfirði) og alla verslun og þjónustu .

Allar nánari upplýsingar veitir Kristján þórir Hauksson lögg. fasteignasali í síma 696-1122 eða á netfanginu kristjan@fastlind.is
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
20/02/202353.700.000 kr.57.000.000 kr.79.3 m2718.789 kr.
15/08/202241.300.000 kr.57.000.000 kr.79.3 m2718.789 kr.
24/08/202137.100.000 kr.22.500.000 kr.79.3 m2283.732 kr.Nei
27/07/201829.200.000 kr.37.000.000 kr.79.3 m2466.582 kr.
27/07/201724.300.000 kr.34.500.000 kr.79.3 m2435.056 kr.
23/02/201621.750.000 kr.20.500.000 kr.79.3 m2258.511 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Smárabarð 2
Skoða eignina Smárabarð 2
Smárabarð 2
220 Hafnarfjörður
92.8 m2
Fjölbýlishús
312
699 þ.kr./m2
64.900.000 kr.
Skoða eignina Lækjargata 34e
Bílskúr
Skoða eignina Lækjargata 34e
Lækjargata 34e
220 Hafnarfjörður
83.3 m2
Fjölbýlishús
211
743 þ.kr./m2
61.900.000 kr.
Skoða eignina Strandgata 37
Skoða eignina Strandgata 37
Strandgata 37
220 Hafnarfjörður
62.5 m2
Fjölbýlishús
312
1038 þ.kr./m2
64.900.000 kr.
Skoða eignina Hringbraut 69
Skoða eignina Hringbraut 69
Hringbraut 69
220 Hafnarfjörður
86.1 m2
Tví/Þrí/Fjórbýli
312
731 þ.kr./m2
62.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin