
Viltu fasteignir kynna Stakkholt 2a sem er 2ja herbergja íbúð á fjórðu hæð ásamt stæði í bílageymslu.
Á sölusíðu eignarinnar er hægt að nálgast söluyfirlit, húsfélagsyfirlit og önnur sölugögn eignarinnar.
Stakkholt 2a er falleg, björt og nýleg 2ja herbergja íbúð á 4. hæð.
Eignin skiptist í forstofu, samliggjandi stofu/borðstofu og eldhús, svefnherbergi, baðherbergi og svalir. Innaf forstofu er gott rými sem nýtist vel sem t.d. heimaskrifstofa eða leikhorn fyrir barn.
Eignin er skráð 78.4m2 og skiptist í 70,7m2 íbúð og 7,7m2 sér geymslu í sameign. Auk þess eru 6,4m2 svalir sem ekki telja með í skráðum fermetrum.
Fallegt planka harðparket á öllu nema baðherbergi.
Nánari lýsing:
Forstofa: Frá sameign er gengið í forstofu og þaðan er gengið í önnur rými íbúðarinnar.
Vinnuhorn: Innaf forstofu er rými sem nýta má t.d. sem heimaskrifstofu eða leikhorn fyrir barn.
Stofa/borðstofa: Í rúmgóðu, opnu og björtu rými. Frá stofu er gengið út á svalir.
Svalir: Út frá stofu eru 6,4m2 svalir til suðurs.
Eldhús: Eyja aðskilur eldhús frá alrými með harðplasta bekkjum frá GKS. Innbyggð uppþvottavél, blástursofn, spanhellurborð og góður háfur.
Baðherbergi: Gólf og "walk-in" sturta flísalögð. Góðar innréttingar þar sem gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara. Innbyggt upphengt klósett og handklæðaofn.
Hjónaherbergi : Rúmgott og bjart með fataskáp.
Þvottahús: Á baðherbergi er gert ráð fyrir þvottavél og þurrkara.
Geymsla: Í sameign í kjallara er 7,7m2 geymsla sem fylgir íbúðinni.
Í sameign er einnig sameigninleg hjólageymsla ásamt vagnageymslu.
Eignin er á frábærum stað miðsvæðið í Reykjavík. Samgöngur eru góðar á svæðinu, stutt er í leik-, grunn- og menntaskóla, Klambratún, verslanir, veitingahús o.m.fl.
Nánari upplýsingar veita Heiðrekur Guðmundsson, löggiltur fasteignasali í 845-9000 / heidrekur@viltu.is eða Viltu fasteignir í síma 583-5000 / hvad@viltu.is
Viltu fasteignir bjóða fasta söluþóknun frá 995.000 kr. m.vsk
Allt innifalið.
Kynntu þér málið á Viltu.is
Fyrirvarar:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill seljandi því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteignarinnar fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
| Dagsetning | Fasteignamat | Kaupverð | Stærð | Fermetraverð | Nothæfur samningur |
|---|---|---|---|---|---|
| 26/02/2020 | 48.150.000 kr. | 45.000.000 kr. | 78.4 m2 | 573.979 kr. | Já |
| 02/03/2015 | 30.550.000 kr. | 34.200.000 kr. | 78.4 m2 | 436.224 kr. | Já |
| Götuheiti | Pnr. | Póstnr. | m2 | Verð |
|---|---|---|---|---|
190 | 282,9 | 84,9 | ||
250 | 106,9 | 64,1 | ||
111 | 56,8 | 49,9 | ||
170 | 66,1 | 63,9 | ||
300 | 84,2 | 65,9 | ||
260 | 113 | 68,9 |