Fasteignasalan Garður og Einar Örn lgf. kynna til sölu 4 herbergja endaíbúð á 3. hæð við Reyrengi 4 með sérinngangi. Eignin er skráð 103,6 fm. Þar af er íbúðin 98,8 fm og geymslan 4,8 fm ásamt sameiginlegri hjólageymslu. Góðar svalir til vesturs, stór og gróinn garður. Á bílastæði er búið að setja upp hleðslustöðvar og sérmerkt bílastæði í bílskýli.
Eignin skiptist í: Forstofu, stofu, eldhús, baðherbergi, þrjú svefnherbergi, svalir, geymslu og sérstæði í bílskýli.
Íbúðin var endurnýjuð að innan árið 2018:
* Eldhús endurnýjað með fallegri hvítri innréttingu frá Ikea, bökunarofn, uppþvottavél, örbylgjuofn, spanhelluborð og háfur.
* Baðherbergi endurnýjað, skipulagi breytt og ný innrétting sett upp fyrir þvottavélar. Allt rými flísalagt, nýr vaskur, skápar og sturtuaðstaða.
* Allar innihurðir með fellilista og fallegt harðparket, hvort tveggja frá Birgisson.
Nánari lýsing:
Forstofa með flísalögðu gólfi og stórum loftháum skápum.
Stofan er stór og björt með útgengt á góðar og sólríkar svalir.
Eldhús er rúmgott með L-laga innréttingu. Falleg hvít innrétting með bakarofni í vinnuhæð, innbyggðri uppþvottavél og góðu vinnuplássi.
Svefnherbergi 1 er rúmgott með harðparketi á gólfi og fataskápum.
Barnaherbergi 2 með harðparketi á gólfi, glugga á tveimur hliðum og fataskáp.
Barnaherbergi 3 með harðparketi á gólfi, glugga á tveimur hliðum og fataskáp.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf. Upphengt klósett með sturtu, handlaug og veggskápar. Þvottaaðstaða inni á baðherbergi með tæki í góðri vinnuhæð og nóg af skápum.
Geymsla / vagna- og hjólageymsla: Á jarðhæð í suðurenda hússins er 4,8 fm sérgeymsla og í norðurenda hússins er sameiginleg vagna- og hjólageymsla.
Garður: Framan við húsið er hellulögð stétt, malbikuð bílastæði, sérmerkt bílastæði fylgir íbúðinni, gróinn sameiginlegur garður er umhverfis húsið.
Annað:
Mjög góð og fjölskylduvæn staðsetning þar sem stutt er í alla þjónustu s.s. matvöruverslanir, íþróttasvæði, leik- og grunnskóla. Fjölbreytt verslun í nágrenni og náttúrusvæði. Þetta er eign sem vert er að skoða.
Nánari upplýsingar veitir:
Einar Örn Ágústsson - löggiltur fasteignasali
einar@fastgardur.is / sími 888-7979