Hús fasteignasala og Snorri Sigurfinnsson löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu: Bæjarholt 11 í Laugarási. Stórt og veglegt einbýlishús, byggt 2008. Íbúðin er 190,2 fm og bílskúr 42,5 fm. Alls 232,7 fm. Stór útsýnislóð á fallegum stað, 1650 fm.
Laugarás er notalegt sveitaþorp í Biskupstungum, Bláskógabyggð. Vaxandi ferðaþjónusta er á svæðinu og nýtt og glæsilegt baðlón, Laugarás Lagoon.
Húsið sem er timburhús er klætt með standandi klæðningu og bárujárni. Harðviðargluggar og hurðar.
Innra skipulag. Forstofa (nýtt sem skrifstofa i dag) Eldhús, borðstofa og stofa í opnu rými, upptekin loft. Harðparket á gólfi. Eldhúsinnrétting frá Ikea. Stór eyja, Flísalögð borðplata og flísalögð eyja. Spanhelluborð, vínkælir, Tveir bakarofnar, tveir ísskápar, innbyggð uppþvottavél. Framhliðar á hluta innréttinga eru sérgerðar. Björt stofa, hurð og rennihurð úr stofu í garð. Innbyggð lýsing. Hol/gangur. Opið sjónvarpsherbergi, hægt væri að breyta því í fimmta svefnherbergið ef vill. Fjögur svefnherbergi með parketi, þrjú þeirra með fataskápum. Rennihurðar úr tveimur herbergjum í garð. Baðherbergi flísalagt, baðkar með sturtuaðstöðu og innrétting. Salerni á gangi við hjónaherbergið.
Flísalagt þvottahús inn af eldhúsi og þar er útgangur. Fataskápar og kommóður í þvottahúsi.
Bílskúr er einangraður og plastaður. Aksturshurð og gönguhurð.
Lóð frágengin að miklu leiti. Grasflöt og hellulagnir, Sólpallur austanmegin við húsið og nýr sólpallur í vinnslu vestan megin við húsið.
Afhendingartími er samkomulag.
Nánari upplýsingar veitir Snorri Sigurfinnsson, löggiltur fasteignasali, snorri@husfasteign.is s. 8648090. Bókið skoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 3800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu
Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill HÚS fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.