Þriðjudagur 22. október
Fasteignaleitin
Skráð 3. okt. 2024
Deila eign
Deila

Kuggavogur 1

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Laugardalur-104
104.1 m2
4 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
82.500.000 kr.
Fermetraverð
792.507 kr./m2
Fasteignamat
82.150.000 kr.
Brunabótamat
67.280.000 kr.
HH
Heimir Hallgrímsson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 2022
Þvottahús
Lyfta
Garður
Bílastæði
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2511047_3
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
4
Hæðir í húsi
4
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
4
Vatnslagnir
Nýlegar
Raflagnir
Nýlegar
Frárennslislagnir
Nýlegar
Gluggar / Gler
Nýlegt
Þak
Nýlegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Nýtt á skrá! Kuggavogur 1 Reykjavík - Bókið skoðun!

Efsta hæð og glæsilegt útsýni!


Lind fasteignasala / Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali kynna til sölu afar fallega og vel skipulagða 104,1 fermetra 3-4 herbergja íbúð á 4. hæð (efstu) í nýlegu fjölbýlishúsi með lyftu við Kuggavog 1 í Reykjavík. Vandað hús byggt af ÞG Verk. Fallegt útsýni út á sundin, að Snarfarahöfn, Esjunni og víðar. Dýrahald er leyfilegt í húsinu. 

Rúmgott alrými sem er opin stofa við eldhús og auk þess er sér sjónvarpsstofa fyrir miðri íbúð. Sér bílastæði í lokuðum bílakjallara á góðum stað. Útgengi úr stofu á svalir með fallegu útsýni út á sundin og til fjalla. Svalir snúa inn í fallegan bakgarð sem er tyrfður lyngtorfi, garðbekkjum, kvöldlýsingu og leiktækjum. Gott þvottaherbergi inn af íbúð. Rúmgóð 12,4 fermetra sérgeymsla í kjallara og sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.

Hellulögð stétt fyrir framan hús með snjóbræðslu. Sameign er snyrtileg með flísum á sameiginlegri forstofu og teppi á stigagöngum. Lyklalaust aðgengi á flestum hurðum í sameign og kjallara. Nýlegt myndavélakerfi í bílakjallara. Myndavéladyrasími í íbúðum. Bílnúmeramyndavélar á aðalhurð í bílakjallara sem lesa bílnúmer við innakstur.

Um er að ræða eftirsótta staðsetningu í góðu nýlegu fjölskylduhverfi í Vogabyggð í Reykjavík. Leikskóli í göngufjarlægð. Verslun og þjónusta í næsta nágrenni ásamt frábærum hjóla- og gönguleiðum við Elliðaárvoginn. Mikil útivist allt í kring og fallegt umhverfi. Laugardalurinn í næsta nágrenni.

Nánari lýsing:

Forstofa: Með harðparketi á gólfi og skápum.
Stofa: Er rúmgóð, með harðparketi á gólfi og gluggum inn í bakgarð með fallegu útsýni. Stofa rúmar setustofu og borðstofu. Stofa er opin við eldhús. Útgengi á svalir sem snúa inn í bakgarð hússins.
Svalir: Með fallegu útsýni úr á sundin, að Snarfarahöfn og til fjalla.
Eldhús: Með harðparketi á gólfi og fallegri sprautulakkaðri eldhúsinnréttingu með eyju frá Nobila (GKS). Innbyggður kæliskápur með frysti, innbyggð uppþvottavél, spansuðuhelluborð, bakaraofn og eyjuháfur. Stýranleg lýsing undir skápum og útloftun.
Sjónvarpsstofa: Með harðparketi á gólfi.
Baðherbergi: Með flísum á gólfi og hluta veggja. Flísalögð sturta með glerþili og falleg sprautulökkuð innrétting við vask með speglaskáp fyrir ofan. Baðkar með sturtutækjum. Handklæðaofn, upphengt salerni og útloftun.
Þvottaherbergi: Með flísum á gólfi, tengi fyrir þvottavél og þurrkara og útloftun. Góð innrétting með hækkun undir þvottavél og þurrkara.
Svefnherbergi I: Er rúmgott með harðparketi á gólfi, skápum og gluggum til suðvesturs.
Svefnherbergi II: Er gúmott með harðparketi á gólfi, skápum og gluggum til suðvesturs.

Geymsla: Er staðsett á geymslugangi og er 12,4 fermetrar að stærð. Málað gólf.

Bílastæði í lokuðu bílskýli: Vel staðsett. Myndavélavaktaður bílakjallari og aðgangsstýring (myndavélar) á bílakjallara.

Hjóla og vagnageymsla: Er staðsett við bílageymslu og með útgengi á baklóð hússins.

Allar nánari upplýsingar veitir Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali í síma 849-0672 eða á netfanginu heimir@fastlind.is
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
27/05/202261.150.000 kr.71.900.000 kr.104.1 m2690.682 kr.
29/12/20216.200.000 kr.71.900.000 kr.104.1 m2690.682 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2024
Byggt 2022
Fasteignanúmer
2511047
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
B1
Númer eignar
25
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
6.330.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Súðarvogur 9a
Bílastæði
Opið hús:23. okt. kl 17:30-18:00
Skoða eignina Súðarvogur 9a
Súðarvogur 9a
104 Reykjavík
106 m2
Fjölbýlishús
312
810 þ.kr./m2
85.900.000 kr.
Skoða eignina Dugguvogur 8
3D Sýn
Bílastæði
Skoða eignina Dugguvogur 8
Dugguvogur 8
104 Reykjavík
118.6 m2
Fjölbýlishús
413
724 þ.kr./m2
85.900.000 kr.
Skoða eignina Sólheimar 23
Skoða eignina Sólheimar 23
Sólheimar 23
104 Reykjavík
123.4 m2
Fjölbýlishús
512
696 þ.kr./m2
85.900.000 kr.
Skoða eignina Dugguvogur 55
Skoða eignina Dugguvogur 55
Dugguvogur 55
104 Reykjavík
120.5 m2
Fjölbýlishús
312
663 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2024 - Fasteignaleitin