Eignin er seld með fyrirvara
Erling Proppé & Remax kynna í sölu vel skipulagt sannkallað fjölskyldu-raðhús með stórkostlegu útsýni við Glósali 14, 201 Kópavogi. Um er að ræða vel staðsett raðhús í hlíðum hins vinsæla Salahverfis, stórar sólarsvalir með stórfenglegu útsýni yfir keili og út á sjó er punkturinn yfir i-ið. Húsið hefur fengið töluverðar endurbætur og er með aukinni lofthæð.
Fyrir nánari upplýsingar hafið samband við: Erling Proppé lgf // 690-1300 // erling@remax.is Eignin er staðsteypt á steyptum sökkli á tveimur hæðum, birt stærð hússins samkvæmt FMR er 191,1 m2 þar af er bílskúr 24,6 m2.Nánari lýsing: Forstofa björt og opin með harðparket á gólfi.
Barnaherbergi I: með fataskáp, harðparket á gólfi.
Barnaherbergi II: með harðparket á gólfi.
Barnaherbergi III: með fataskáp, harðparket á gólfi.
Baðherbergi: Glæsilegt nýlega endurnýjað, flísalagt í hólf og gólf, vegghengt salerni, falleg innrétting með handlaug, "walk in" sturta, flott svört blöndunartæki og handklæðaofn.
Bílskúr / Herbergi IIII: Bílskúrinn er rúmgóður með slitsterku epoxy á gólfum og innangengur úr húsinu og að utan. Bílskúrnum hefur verið breytt í herbergi, parketlagður og bílskúrshurð lokað af með léttum millivegg. Auðvelt er að breyta aftur í bílskúr.
Geymsla: er inn af bílskúrnum og er opið þar í gegn inn í þvottahúsið.
Þvottahús: er mjög rúmgott og flísalagt, góð vinnuaðstaða og skolvaskur ásamt útgengi út í garð.
Steyptur stigi er á milli hæða, með gegnheilum parketi á þrepum.Eldhús er nýlega endurnýjað með fallegri innréttingu og vönduðum tækjum sem telja combi ofn, bakaraofn, stórt spanhelluborð og innbyggða uppþvvottavél.
Stofa/borðstofa: Mikil lofthæð, opin, björt og útgengt á stórar sannkallaðar samkomusvalir með stórfenglegu útsýni með fjallasýn.
Hjónaherbergi: rúmgott, aukin lofthæð að hluta, bjart og með góðu fatahengi með glugga.
Baðherbergi: flísalagt í hólf og gólf með vegghengdu salerni, innréttingu og hornbaðkari.
Húsið hefur fengið gott viðhald jafnt innan sem utan. Að framan er stórt og gott bílaplan með snjóbræðslu sem tekur 2-3 bíla ásamt nýlegri hleðslustöð, þar er einnig að finna góða timburverönd sem er einstaklega skjólsæl á blíðviðrisdögum.
Nýlegar framkvæmdir:- 2018 Ný eldhúsinnrétting
- 2021 baðherbergi á neðri hæðinni endurnýjað ásamt gólfefnum ofl.
- 2021 Bílskúr breytt í herbergi og gólfið parketlagt. Sér inngangur er í bílskúrinn/herbergið og einnig innangengt úr húsinu. Auðvelt að breyta aftur í bílskúr. Parket var lagt ofan á epoxy gólf og einn léttur veggur settur fyrir bílskúrshurð
- 2021 Ruslageymsla smíðuð fyrir utan þar sem 3 tunnur komast fyrir.
- 2022 Svalir teknar í gegn (flísar teknar af og gólfið múrað). Múrað, yfirfarið og málaðar innan sem utan.
- 2023 Allir gluggalistar að utan málaðir
Niðurlag: Frábær vel staðsett eign sem vert er að skoða þar sem öll helsta þjónusta er í nágrenninu.Fyrir nánari upplýsingar hafið samband við: Erling Proppé lgf // 690-1300 // erling@remax.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 59.900 mvsk.