***REYNIGRUND 17 - AKRANESI***
Prima Fasteignasala og Ólafur Sævarsson lögg.fasteignasali kynna: Mjög svo fallegt og mikið endurnýjað 168.3 fm einbýlishús að meðtöldum 33.6 fm bílskúr.
Eignin skiptist í forstofu, eldhús,stofu sem og borðstofu með útgang út á stóran suður sólpall. Hjónaherbergi og 2 rúmgóð barnaherbergi. Voru áður 4 svefnherbergi. Baðherbergi, þvottahús og rúmgóðan bílskúr. Húsið er timburhús á steyptri plötu.
Lýsing eignar:
Forstofa: Rúmgott með flísum á gólfi. Góðir fataskápar.
Eldhús: Parket á gólfi með fallegri hvítri innréttingu (nýleg innrétting). Nýleg eldhústæki.
Hjónaherbergi: Rúmgott hjónaherbergi með góðum fataskáp. Parket á gólfi
Svefnherbergi I: Rúmgott herbergi með parket á gólfi.
Svefnherbergi II: Rúmgott herbergi með parket á gólfi.
Herbergisgangur: Parket og góðir fataskápar í enda gangs. Útihurð út á sólpall í enda gangs.
Baðherbergi: Fallegt baðherbergi með fallegri hvítri innréttingu og hvítum skáp.Flísalagt með walk in sturtu með glervegg. Gluggi á baðherbergi. Hiti í gólfi.
Stofa/borðstofa: Góð stofa sem og borðstofa með parket á gólfi. Útgangur út á suður sólpall. 2 rafmagnsofnar í stofu.
Þvottahús: Rúmgott snyrtilegt þvottahús með með góðri innréttingu og físum á gólfi. Einnig er wc. Útgangur út á bílaplan.
Bílskúr: Rúmgóður bílskúr með inngönguhurði út í garð.. Hiti, rafmagn og hurðaopnari.
Eignin hefur fengið gott viðhald og mikið sem er búið að skipta út síðustu ár.
2014
Rafmagn endurnýjað að hluta. Loft klædd með loftaplötum, nema í herbergjum.
2015-2016
Bílskúrshurð endurnýjuð og settur bílskúrshurðaopnari. Lokað fyrir glugga sem voru á bakhlið bílskúrs og tveir nýjir gluggir settir á hlið.
Allar útihurðar endurnýjaðar nema á bílskúr. Allar útihurðar eru frá Kjarnagluggum.
Þak og þakkantur endurnýjað á bæði húsi og bílskúr og sett ný klæðning á bílskúr. Sólpallur gerður og plan malbikað.
Innhurðar endurnýjaðar, keyptar í Parka.
2017
Fremri helmingur húss flotaður, teknir nokkrir veggir og sett ný eldhúsinnrétting frá HTH, tæki frá Ormsson. Parketlagt.
Ný rafmagnstafla sett upp og rafmagn klárað. Þvottahúsinnrétting sett upp frá Ikea. Hús og bílskúr málað að utan.
Neysluvatnslagnir endurnýjaðar.
2019
Anddyri og þvottahús flísalagt, ath þvottahúsgólf er ekki flotað. Gesta wc sett upp í þvottahúsi (vegghengt wc og vaskinnrétting) ásamt sturtuklefa, rennihurð (Parki), og Pax fataskáp frá Ikea.
Heitur pottur keyptur og settur á pallinn. Garður hækkaður upp í flútti við hús og sett möl.
Gerð breyting á gangi, veggur tekinn niður og herbergi minnkað. Gluggi tekinn og sett hurð út á pallinn í staðinn. Sorptunnuskýli og blómaker keypt frá Steypustöðinni.
2020
Innri helmingur húss flotaður og settur gólfhiti. Gert af Gólfhitalögnum.
Baðherbergi tekið í gegn, flísaðir veggir og gólf. “walk in” sturta sett upp, nýtt wc ásamt vaskinnréttingu frá Ikea. Pax skápur frá Ikea. Wc, sturtutæki, og gólfrist keypt í Húsasmiðjunni. Glerskilrúm keypt í Innréttingar og tæki.
Allir gluggir endurnýjaðir. Keyptir hjá Scanva.
Um er að ræða mjög fallegt og vel viðhaldið einbýlishús á þessum rólega og fallega stað á Grundunum. Stutt í Grundarskóla sem og Jaðarsbakka.
Nánari upplýsingar veita:
Ólafur Sævarsson löggiltur fasteignasali / s.820 0303 / olafur@primafasteignir.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.