Guðmundur Þór Júlíusson & Ástþór Reynir löggiltir fasteignasalar hjá RE/MAX fasteignasölu kynna í einkasölu:
Um er að ræða glæsilegt 297,9 fm raðhús við Brautarás 19, 110 Reykjavík. Húsið er á þremur hæðum með rúmgóðum bílskúr, fallegum garði fyrir framan og aftan hús. Heitur pottur á palli, útisturta og rúmgóður pallur. Aukaíbúð á neðri hæð hússins með útleigumöguleika. Eignin hefur fengið gott viðhald í gegnum árin.
Íbúð á hæð 84,7 fm (merkt 10-0101), íbúð í kjallara 84,7 fm (merkt 10-0001), íbúðarherbergi á hæð 85,6 fm (merkt 10-0201) og bílskúr er 42 fm (merkt 20-0101) samtals er eignin 297,9 fm skv skráningu Þjóðskrá Íslands.
Aðalhæð:
Forstofa er með flísum á gólfi og góðum skápum.
Gestasalerni er inn af forstofu, klósett og vaskur.
Stofa & Borðstofa er með harðparketi á gólfi, rúmgóða stofa með arin og opið við eldhús.
Eldhús er með flísum á gólfi, innrétting með rúmgóðri eyju, efri og neðri skápum, flísalagt er á milli efri og neðri skápa. Inn af eldhúsi er þvottahús.
Þvottahús er með flísalögðu gólfi, góðu vinnuborði og rúmgóðri innréttingu eftir heilum vegg, með vaski og tengjum fyrir þvottavél og þurrkara. Úr þvottahúsi er gengið út á glæsilegan sólpall þar sem er að finna heitapott, útieldhús og gott rými til útiveru og samveru.
Bílskúrinn er rúmgóður með steyptu gólfi, heitt og kalt vatn, tvær innkeyrslu hurðar.
Efri hæð:
Hol er rúmgott og bjart.
Svefnherbergin eru þrjú og eru öll með teppalögðum gólfum.
Hjónaherbergi er rúmgott og með fataherbergi inn af ásamt góðu skápaplássi. Rúmgóðar svalir eru út frá herbergi.
Svefnherbergi I er í dag nýtt sem skrifstofa og sjónvarpsherbergi.
Svefnherbergi II er rúmgott og með góðu skápaplássi.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf og er með baðkari, handklæðaofni, salerni og góðri innréttingu með skápum yfir og undir vaski.
Sjónvarpsherbergi hefur verið útbúið í kjallara. Jafnframt er möguleiki á að opna á milli hússins og kjallaraíbúðarinnar og útbúa þannig innangengt á milli eininganna.
Íbúð í kjallara: ??
Forstofa
Stofa er með parketi á gólfi
Svefnherbergi
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, baðkar, sturta, wc, handklæðaofn og innrétting undir vask.
Eignin hefur fengið gott viðhald í gegnum árin: ???
Stutt er í alla helstu þjónustu eins og leik- og grunnskóla, íþróttastarf Fylkis, sundlaug, náttúruparadísin Elliðarárdalurinn, verslanir, bakarí og læknaþjónusta er skammt frá.
Allar nánari upplýsingar um eignina veitir:
Guðmundur Þór Júlíusson löggiltur fasteignasali í síma 858-7410 eða gj@remax.is
Ástþór Reynir löggiltur fasteignasali í síma 899-6753 eða arg@remax.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.