Fasteignasalan TORG kynnir :
Gullfallegt og mikið endurnýjað 277,3fm raðhús að meðtöldum 22,9fm bílskúr á mjög skjólsælum stað neðst við Fylkisvöllinn. Húsið er mjög vel skipulagt með rúmgóðri þriggja herbergja íbúð í kjallara upplögð til útleigu. Húsið var allt tekið í gegn og endurnýjað 2007. Rut Káradóttir teiknaði breytingarnar. Aðalíbúð skiptist í forstofu, wc, eldhús, stofu, borðstofu, fjögur svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús. Neðri hæð skiptist í forstofu, tvö svefnherbergi, stofu, borðstofu, eldhús, þvottahús/búr og geymslu. Útgengt út á stóra suður verönd. Eignin getur verið laus við kaupsamning. Nánari upplýsingar veitir Helgi Jónsson Löggiltur fasteignasali í síma : 780-2700 eða á Helgi@fstorg.isNÁNARI LÝSING : Lýsing aðalhæðar:Forstofa: björt og rúmgóð með stórum fataskápum og flísum á gólfi.
Gestasnyrting: flísalögð í hólf og gólf, upphengt salerni.
Eldhús: rúmgott, vandaðar sérsmíðaðar innréttingar, gas- og spanhelluborð og gufugleypir. Granítsteinn er á eldhúsborðum. Aukaofn í eldhúsi, (comb. Örb/ofn/airfryer), kvörn í eldhúsvaski, uppþvottavél, gólfhiti, flísar eru á gólfi og góður borðkrókur með föstu borði og bekkjum við glugga fylgja með.
Borðstofa: rúmgóð og með útgengi á skjólgóðar svalir með útsýni til suðurs.
Stofa: er parketlögð, björt og með vönduðum arni.
Hiti er í öllum gólfum aðalhæðar.Lýsing efri hæðar:Gengið er um fallegan teppalagðan stiga á efri hæð.
Sjónvarpshol: rúmgott, teppalagt og með aukinni lofthæð.
Baðherbergi: er rúmgott og flísalagt í hólf og gólf, sturta með glerlokun, baðkar, sérsmíðaðar innréttingar og vönduð tæki. Gluggi.
Hjónaherbergi: parketlagt. Innaf hjónaherbergi er rúmgott fataherbergi með sérsmíðuðum innréttingum. Yfir fataherbergi er geymsluloft.
Þrjú svefnherbergi: eitt parketlagt og tvö með dúk á gólfi. Tvö eru rúmgóð.
Þvottaherbergi: flísar á gólfi og góðar hvítar innréttingar.
Lýsing neðri hæðar:Gengið er niður fallegan teppalagðan stiga í kjallara. Bæði sér inngangur og innangengt. Köld útigeymsla er við inngang í kjallara.
Forstofa: flísalögð.
Gangur: parketlagður.
Herbergi : með parketi á gólfi. Herbergið er tvöfalt og upplagt að nota innra rýmið sem fataherbergi eða skrifstofu.
Baðherbergi: flíslagt í hólf og gólf, sturta og innrétting.
Geymsla: undir stiga, dúkur á gólfi.
Stofa: með parketi á gólfi, opin við eldhúsrými að hluta.
Eldhús: rúmgott og með fallegri hvítri innréttingu, góð borðaðstaða. Uppþvottavél og ísskápur fylga með parketi á gólfi. Útgengt út á suður verönd og þaðan út í garð.
Búr: innaf eldhúsi, dúkur á gólfi og hillur.
Bílskúrinn er með hita, rafmagni og vatni. Nýlega var skipt um bílskúrshurð ásamt hurðaopnara. Hleðslustöð er í bílskúr. Sér merkt bílstæði fylgir eignini.
Árið 2007 voru tvær efri hæðir hússins nánast algjörlega endurnýjaðar. Rut Káradóttir teiknaði breytingarnar. Beyki ehf sá um alla sérsmíði á innréttingum og skápum í eldhúsi, forstofu, holi, baðherbergi, snyrtingu miðhæðar, sjónvarpsholi og arni í stofu. Raftæki í eldhúsi ýmist Miele eða Siemens. Bæði spanhellur og gas.
Kvörn í eldhúsvaski (General Electric). Einnig voru settir nýir skápar í fataherbergi, tvö barnaherbergi og þvottahús. Skipt var um allar innihurðir. Allt parket er frá
Parka ehf og flísar eru vandaðar ítalskar flísar frá Agli Árnasyni. Blöndunartæki, wc og baðkar eru frá Ísleifi Jónssyni (Philip Stark by Duravit). Neysluvatnslagnir voru endurnýjaðar, ásamt mestu af pípulögnum, hitakerfi sett í allt gólf miðhæðar og á baðherbergi efri hæðar.
2020 : Baðherbergi á jarðhæð endurnýað og flísalagt ásamt boðplötu í eldhúsi og helluborði. 2021 : Þak hússins háþrýstiþvegið og málað. 2022 : Múviðgerðir og húsið málað að utan. 2023 : skipt um þakkant og rennur á suðurhlið. 2024 : skipt um parket á jarðhæð. 2024 : Neysluvatn á jarðhæð endurnýjað. 2026 : Neysluvatnsforhitari endurnýjaður.
Húsið er mjög vel staðsett við Fylkisvöllinn, Leik- og grunnskóli í göngufæri ásamt aðgengi í matvörubúð og strætó.Nánari upplýsingar veitir Helgi Jónsson Löggiltur fasteignasali í síma : 780-2700 eða á Helgi@fstorg.is