CROISETTE kynnir í einkasölu einstaklega fallegt parhús á einni hæð ásamt bílskúr við Hjallabrún 2 í Hveragerði. Eignin er samtals 146,5 fm og skiptist í forstofu, stórt alrými með fallegu eldhúsi, stofu og borðstofu og aukinni lofthæð, tvö rúmgóð svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og bílskúr. Stór sólpallur er við húsið og er lóðin og bílaplanið fullfrágengin.
Einstaklega vönduð og falleg eign þar sem ekkert er til sparað í frágangi og gæðum og efnisval er í hæsta gæðaflokki. Allar nánari upplýsingar veita Elín Auður Traustadóttir löggiltur fasteignasali í s: 858-0978 eða elin@croisette.is og Styrmir Bjartur Karlsson löggiltur fasteignasali í s: 899-9090 eða styrmir@croisette.isSMELLTU HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLITNánari lýsing:Forstofa: Komið inn í bjarta forstofu með fatahengi. Frá forstofu er stór og bjartur gangur sem tengir rými hússins.
Stofa og borðstofa: Stofa og borðstofa eru í opnu rými með eldhúsi. Mikil lofthæð. Gengið er út á sólpall frá stofu. Gegnheil fura á gólfi.
Eldhús: Falleg hvít innrétting með eldhúseyju sem hægt er að sitja við. Ofn, helluborð og innbyggð uppþvottavél. Marmari á borðum. Gegnheil fura á gólfi.
Svefnherbergi I: Stórt og bjart svefnherbergi með fataskáp. Gegnheil fura á gólfi.
Svefnherbergi II: Bjart og rúmgott svefnherbergi. Gegnheil fura á gólfi.
Baðherbergi: Bjart og rúmgott baðherbergi. Falleg hvít innrétting með vaski, stór spegill ofan við innréttingu, upphent salerni, frístandandi baðkar, flísalögð sturta, fallegar hvítar flísar á veggjum og marmari á gólfi.
Þvottahús: Þvottahús er framan við bílskúrinn. Góð innrétting með vaski og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Gegnheil fura á gólfi.
Bílskúr: Bílskúrinn er 23,3 fm að stærð með bílskúrshurð með rafmagnsopnarar. Bílskúrinn er í dag innréttaður sem vinnustofa. Gegnheil fura á gólfi.
Sólpallurinn er afgirtur með heitum potti. Garður er tyrfður með fallegum gróðri. Bílaplan er hellulagt með snjóbræðslu.
Gólfhiti er í allri eigninni. Gólfefni eru gegnheil fura og marmari á gólfi baðherbergis.
Mjög björt og falleg eign sem lætur engan ósnortinn. Eign í algjörum sérflokki í Hveragerði.Allar nánari upplýsingar veita:Elín Auður Traustadóttir löggiltur fasteignasali í s: 858-0978 eða elin@croisette.is
Styrmir Bjartur Karlsson löggiltur fasteignasali í s: 899-9090 eða styrmir@croisette.is
Eignin Hjallabrún 2 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 236-6508, birt stærð 146.5 fm.Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Croisette home fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: - Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
- Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
- Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
- Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
- Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af væntanlegu brunabótamati, þegar það er lagt á.