Jón Smári Einarsson lgf. s. 8606400 og Fasteignaland kynna eignina Skógarholt 9, 805 Selfoss.
Skógarholt 9 er sumarhús í frístundabyggð í landi Ásgarðs við Sogið, skammt frá Þrastaskógi.
Hitaveita, heitur pottur, lokað svæði.
Lýsing:
Forstofa með parketflísum á gólfi, fatahengi og skáp. Herbergisgangur með parketflísum á gólfi. Tvö herbergi með parketflísum á gólfum. Baðherbergi er með parketflísum á gólfi og sturtuklefa. Stofan er með parketflísum á gólfi, góðri lofthæð, kaminu og útgengi út á sólpall. Eldhús er með parketflísum á gólfi, innréttingu með uppþvottavél og sambyggð eldavél með ofni og hellum. Gott svefnloft (23 fm gólfflötur) með opnalegu fagi (neyðarstigi fyrir utan), nýtt sem sjónvarpsstofa.
Húsið stendur á 5.000 fm eignarlóð sem er skógi vaxinni. Í þessu húsi er lokað ofnakerfi og hitaveita. Stór sólpallur með góðri skjólgirðingu er við húsið ásamt heitum potti og möguleiki á útisturtu og skjólveggjum.
Sólskálinn: ca. 10 fm og klæddur með plexigleri og geymslupláss fyrir aftan um 7 fm til viðbótar. Kalt rými.
Geymsluskúr: Gengið er inn frá sólskála, ca. 7 fm. Geymslan er nýtt sem þvottahús. Er upphitaður.
Útigeymsla: ca. 1,5 fm geymsla nýtt fyrir slátturvél. Kalt rými.
Lóðin er eignarlóð og er skráð 5.000 fm og er búið að planta miklu magni af trjágróðri. Stórir og miklir sólpallar með girðingu og skjólgirðingu. Húsið stendur á steyptum súlum.
Góð aðkoma og næg bílastæði.
Vel hefur verið hugsað um sumarhúsið og skv. seljandi hefur eftirfarandi m.a. verið framkvæmt:
* 2018 - Stigi upp á svefnloft endurnýjaður.
* 2018 - Ný uppþvottavél.
* 2020 - Bílaplan stækkað.
* 2024 - Nýtt eldhús, eldavél og ísskápur.
* 2022 - Vaskur og innrétting á baðherbergi endurnýuð.
* 2025 - WC endurnýjað.
* 2024 - Innkeyrslu vegur innan sumarhúsasvæðisins hækkaður og mikið lagaður.
* 2026 - Klæðning meðfram sólpalli endurnýjuð að hluta.
Árgjald í sumarhúsfélag svæðisins er um kr. 25.000.
Lokað svæði með rafmagnshliði (símahlið).
Möguleiki er að fá innbúi með í kaupum á eigninni utan persónulegra hluta.
Um er að ræða heilsárshús á eftirsóttum stað í Grímsnesinu í um 45 mín. aksturs fjarlægð frá Reykjavík.
Eignin Skógarholt 9 er skráð sem hér segir hjá HMS: Eign 220-7290, merkt 01-01, birt stærð 63.8 fm.
Staðsetning og nærumhverfi:
Frá Reykjavík eru aðeins um 60 km sé ekið um Hellisheiði. Styttra um Nesjavallaveg.
Stutt er til þekktra staða á Suðurlandi, Skálholts, Þingvalla, Laugarvatns, Geysis, Gullfoss og Kersins. Stutt er í veiði, sundlaug, golfvöll, íþróttavöll og fallegar gönguleiðir. Selfoss er aðeins í 16 km fjarlægð og því stutt í alla þjónustu.
Nánari upplýsingar veitir:
Jón Smári Einarsson
Löggiltur fasteignasali / MPM, viðskiptafræðingur.
jonsmari@fasteignaland.is
860-6400
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignaland fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.
Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
Nýtt - Eignin er nýbygging.
Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup á íbúðarhúsnæði m.v. amk. 50% hlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda kr. 69.900 .
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.