Til leigu um 630 m² lager- og iðnaðarhúsnæði við Skútuvog 6 í Reykjavík. Laust samkvæmt samkomulagi.
Há innkeyrsludyr er til staðar og lofthæð mest um 6 m. Möguleiki er á að leigja til viðbótar skrifstofur á 2. hæð.
Fjöldi bílastæða er við húsið.
Hægt að leigja fleiri fermetra af lagerrými ef þess er óskað.
Við leigufjárhæð bætist virðisaukaskattur.
Hafðu samband við Ólaf Jóhannsson, löggiltan fasteignasala í síma 824-6703, olafur@jofur.is eða Magnús Kristinsson, löggiltan fasteignasala í síma 861-0511, magnus@jofur.is til að fá upplýsingar um eignina.