-Einbýlishús á einni hæð
-Bílskúr með djúpa innkeyrslu
-Aukaíbúð með möguleika á leigutekjum
-Skjólgóð veröndFallegt einbýlishús á eftirsóttum stað þar sem möguleikarnir eru fjölmargir.
Eignin hentar fullkomlega fyrir fjölskyldur sem vilja hafa rými, sveigjanleika og möguleika á aukatekjum.
Húsið er skráð 223,0 fm samkvæmt HMS, þar af eru fylgieiningar 38,8 fm.
Parketlagt er í flestum svefnherbergjum og stofum en eldhús og votrými eru flísalögð.
Aukaíbúð er með sérinngangi. Hún er með gólfhita og býður upp á tækifæri til útleigu en eignin hentar einnig vel sem kynslóðahús þar sem eldri eða yngri fjölskyldumeðlimur getur búið í séreiningu með nálægð og tengingu við aðalíbúð. Þá gefur skipulag hússins spennandi möguleika á að útbúa glæsilega svefnherbergjasvítu með sérútgangi út í garð.
Innkeyrsla er djúp með nægt pláss fyrir fleiri bíla.
Skipt hefur verið um gler í öllum gluggum eftir þörfum.
Við húsið er skjólgóð og sólrík verönd og rótgróinn og gróskumikill garður umlykur eignina og skapar notalegt og friðsælt andrúmsloft.
Umhverfið er barnvænt og friðsælt og húsið stendur við rólega botnlanga götu.
Hér er um að ræða heimili með góða sál, marga möguleika og frábær staðsetningu.
Nánari upplýsingar veita:
Ævar Jóhanns Lgf. s: 861-8827 eða aj@palssonfasteignasala.isPáll Pálsson Lgf. í S:775-4000 eða palli@palssonfasteignasala.isNánari lýsing:
Forstofa er flísalögð með speglaskáp.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með sturtu, hvítri vaskinnréttingu, skápum og opnanlegum glugga.
Gestabaðherbergi er flísalagt upp á miðjan vegg, útbúið salerni og vaski.
Eldhús er með timburinnréttingu, bæði efri og neðri skápar. Útbúið bakaraofni í vinnuhæð, helluborði og uppþvottavél. Einnig er hvít innrétting með skúffuplássi.
Stofa og
borðstofa eru parketlagðar og flæða saman í eitt. Þaðan er útgengt út á verönd.
Þvottahús er flísalagt með hvítri skápa innréttingu.
Svefnherbergi eru parketlögð og með skápaplássi.
Aðeins um 3 mínútna ganga er að strætóstöð.
15 mínútur með strætó í miðbæ.
Þá er örstutt í fallega náttúru og að Gróttu sem býður upp á einstaka útivist allt árið um kring.
-Athygli er vakin á því að einhverjar myndir hafa verið sviðsettar með tölvutækni til þess að gefa kaupendum hugmynd að nýtingu rýmis þar sem eignin er nánast tóm.www.eignavakt.iswww.verdmat.is Góð ráð fyrir kaupendur / seljendurGjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.