Hrönn Ingólfsdóttir lgfs og Prima fasteignir kynna: Einstaklega fallegt og vel skipulagt parhús á tveimur hæðum með þremur til fjórum svefnherbergjum, í nýju hverfi við
Kumlamýri 22 á Álftanesi. Húsið er skráð 203,6 fm ásamt bílskúr sem er þar af 27,4 fm. Gólfhiti er í öllu húsinu sem er afar vandað með Free home kerfi og hvergi er til sparað við efnisval og frágangi.
Eignin skiptist þannig: forstofa, eldhús, stofa, þrjú góð herbergi, tvö baðherbergi, þvottahús, geymsla, sjónvarpshol og bílskúr. Verönd til er til suðurs og rúmgóðar svalir á efri hæð. Þetta er eign sem er vert að skoða! Eigandi skoðar skipti á minni eign.
Allar nánari upplýsingar og bókun skoðunar veitir Hrönn Ingólfsdóttir í síma 692 3344 eða hronn@primafasteignir.is.Verð miðast við fullbúið hús að utan og innan með gólfefnum og grófjafnaðri lóð. (Möguleiki að fá lóðina fullgerða með 60 fm timburverönd, þökulögð og bílaplani með snjóbræðslu)
Búið er að jarðvegsskipta allri lóðinni.
Húsið er staðsteypt á tveimur hæðum, einangrað og klætt að utan.
// Aukin lofthæð
// Gólfsíðir gluggar
// Innbyggður bílskúr
// Gólfhiti
// Vandaðar innréttingar
// Garður snýr vel að sólu
// 3 - 4 svefnherbergi + 2 - 3 Stofur + 2 Baðherbergi
Nánari lýsing eignar.Herbergjafjöldi: Þrjú svefnherbergi með möguleika á að breyta sjónvarpsholi á efri hæð í fjórða svefnherbergið.
Alrými: Eldhús–stofa–borðstofa í opnu flæði með útgengi á verönd.
Votrými: Tvö baðherbergi, eitt á hvorri hæð.
Þvottahús: á efri hæð.
Bílskúr: 27 m², innangengt úr íbúð.
Burðarvirki, einangrun og gluggar:Frágangur að utan: Húsið er fullbúið með tvöfaldri álklæðningu frá Málmtækni.
Gluggar: Ál/viður frá Byko.
Einangrun: Samkvæmt gildandi byggingarkröfum á verktíma.
Innanhúsfrágangur:Veggir: Sparslaðir, grunnaðir og málaðir í einni umferð.
Loft: Frágengin með innfelldri lýsingu að hluta.
Gólf: Parketlögð.
Hitakerfi: Gólfhiti í öllum rýmum í húsinu.
Raflagnir: Fullfrágengið - Free home.
Baðherbergi: Flísalögð og innréttingar frá HTH.
Innréttingar og tæki sem fylgja við afhendingu:Innréttingar: HTH (eldhús og baðherbergi)
Eldhústæki: AEG. Ísskápur og uppþvottavél fylgja.
Blöndunartæki: GROHE.
Lagnir, rafmagn og búnaður:Heitur pottur: Undirbúningur er til staðar (lagnir).
Kaldur pottur: Undirbúningur er til staðar (lagnir).
Útisturta: Undirbúningur er til staðar (lagnir).
Rafbílahleðsla: Fylgir.
Lóð og utanhús:Húsið fullklárað að utan ásamt hleðslustöð og lóð grófjöfnuð.
Það sem fylgir ekki:Lóð: Tyrfa við hlið hússins/ eða setja timburverönd
Bílaplan: Hellulagt.
Verönd: ~60 m² timburverönd að aftan, búið verður að setja niður staura fyrir pall.
Kumlamýri er ný gata á Álftanesi. Hún liggur í suðurátt frá Suðurnesvegi og frá henni kvíslast fimm botnlangar. Við hvern botnalanga standa fjögur parhús með alls átta íbúðareiningum með sameiginlegu götu-og íverusvæði í miðju. Megin hugmynd deiliskipulagsins fyrir svæðið er að viðhalda, eftir því sem verða má, því búsetulandslagi sem einkennt hefur Álftanes. Því er leitast við að húsin myndi óreglulegar þyrpingar sem umlykja sameiginleg aðkomusvæði í stað þess að þau myndi hefðbundna götumynd. Nýja hverfið liggur þétt að grónu hverfi og er því stutt í alla helstu þjónustu, svo sem skóla, leikskóla, sundlaug, íþróttamiðstöð og golfvöll. Þá er fallegt útivistarsvæði allt um kring.
Kaupandi greiðir 0,3 % skipulagsgjald sem er innheimt þegar endanlegt brunabótamat liggur fyrir.
Kaupandi greiðir 0,8% af fasteignamati sem sýslumaður áæltar fyrir kaupsamning.