BYR fasteignasala kynnir LYNGHEIÐI 25 Hveragerði í einkasölu. Fimm herbergja einbýlishús á einni hæð með innbyggðum bílskúr. Húsið stendur í grónu hverfi innst í botnlanga, stutt í alla almenna þjónustu, gönguleiðir og Hamarinn. Smellið hér fyrir staðsetningu. Húsið er steypt, byggt árið 1988. Eignin skiptist í íbúð 154.3 m² og bílskúr 40.6 m² að stærð samtals 194.9 m² að stærð samkvæmt skráningu HMS.
Skipulag eignar: Anddyri, eldhús og borðstofa/skáli, stofa, fjögur herbergi, baðherbergi, gangur, gestasalerni, þvottahús, tvöfaldur bílskúr og sólstofa.
Nánari lýsing:Anddyri; fatahengi, innangengt er úr anddyri í svefnherbergi og gestasnyrtingu.
Gestasnyrting, upphengt salerni og handlaug, flísar á gólfi.
Stofa, parket á gólfi, Arin er í stofu (virkur), frá stofu er útgengt í sólskála.
Eldhús með U-laga innréttingu og eyju, flísar á milli skápa. AEG uppþvottavél (fylgir), ofn og helluborð, vifta.Tvöfaldur ísskápur fylgir með. Flísar á gólfi.
Barnaherbergin eru tvö, fjórfaldur fataskápur eru í stærra herberginu, parket á gólfi.
Hjónaherbergi, harðviðarparket á gólfi, sexfaldur fataskápur.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, upphengt salerni, rúmgóð innrétting með vask, sturta og baðkar, handklæðaofn, gluggi.
Þvottahús með innréttingu, pláss fyrir tvær vélar í vinnuhæð, stálvaskur í innréttingu. Dúkur á gólfi.
Bílskúr tvöfaldur flísar á gólfi, innangengt er í bílskúr úr þvottahúsi, einnig er inngönguhurð að aftanverðu. Tvær bílskúrshurðar, önnur með rafmagnsopnara.
Inn af bílskúr er
vinnuherbergi/skrifstofa, parket á gólfi.
Sólskáli, er framan við stofu í suður og vestur átt, flísar á gólfi.
Veggfastar hillur í alrými og barnaherbergi fylgja. Öll loftljós fylgja ásamt rúllugardínum. Hillur í bílskúr fylgja. Tvöfaldur ísskápur, keyptur 2024, fylgir. Sófi í stofu fylgir.Lyngheiði 25 er steinsteypt hús á einni hæð byggt árið 1988. Hellulagt er fyrir framan húsið, meðfram og fyrir aftan bílskúrinn, hellulagt bílaplan pláss fyrir þrjár bifreiðar.
Lóðin er fullfrágengin, steyptur pottur er fyrir framan hús, kartöflugarður fyrir aftan hús. Steyptur kantur er kringum alla lóðina.
Fánastöng á lóð fylgir ekki. Lóðin er 748,8 m² leigulóð frá Hveragerðisbæ.
Eftirfarandi hefur verið endurnýjað á árunum 2022-2024:Haust 2023 var þakið endurnýjað í heild sinni, þak var sett á lektur, skipt var um dúk og sett nýtt stallað járn frá Áltak ásamt því að þakkantar, þakgluggar og reykháfur var klætt.
Einnig var styrktarbiti settur undir skyggni framan við húsið. Desember 2024 var öðru gluggastykkinu í hjónaherberginu skipt út.
Skjólveggir voru málaðir 2024. Rafmagnstöflur í anddyri og í bílskúr voru endurnýjaðar í heild sinni desember 2024.
Öll innfeld loftljós (LED) í alrými, hjónaherbergi og öðru svefnherberginu var skipt út desember 2024 ásamt öllum ljósum í bílskúr.
Gestasnyrting var tekin í gegn sumarið 2024, nýtt upphengt salerni, vaskaskápur og flísalagt. Aukaherbergi/skrifstofa var parketlagt og málað 2022.
Skráning eignarinnar hjá HMS:
Fastanúmer 221-0761.Stærð: 01.0101 Íbúð 154.3 m². 01.0102 Bílskúr 40.6 m². Smatals 194.9 m²
Brunabótamat: 105.950.000 kr.
Fasteignamat: 93.700.000 kr
Byggingarár: 1988.
Byggingarefni: Steypa.