ÁRBORGIR SELFOSSI S 482 4800 kynna:
Reisulegt einbýlishús sem stendur á stórri lóð í grónu hverfi á Flúðum.Eignin er timburhús á tveim hæðum auk sérbyggðs bílskúrs samtals skráðið 201,3m2 að heildarstærð.
Húsið er klætt að utan með málaðri timburklæðningu, litað járn er á þaki.
Að innan skiptist húsið þannig að á neðri hæð er forstofa, þvottahús, baðherbergi, stofa og eldhús. Á efri hæð er hol, baðherbergi, 3 svefnherbergi og geymsla.
Nánari lýsing:Forstofa er dúklögð og þar er fataskápur.
Þvottahúsið er rúmgott gólf er lakkað og þar er hurð út á baklóð.
Holið er flísalagt og þar er stigi uppá efri hæð.
Eldhúsið er flísalagt og þar er snyrtileg eldri innrétting. Búr er innaf eldhúsi.
Baðherbergi er flísalagt en þar er er snyrtileg innrétting og góð sturta.
Stofan er rúmgóð, flísar eru á gólfi og þar er hurð út á sólpall.
Efri hæð:Hol er parketlagt. Geymsla er innaf holil.
Barnaherbergin eru bæði með parketi á gólfi.
Hjónaherbergi er parketlagt og fataherbergi er innaf hjónaherberginu. Útgengt er á svalir.
Baðherbergi er parketlagt en þar er góð innrétting og lagnir fyrir sturtu/baðkar.
Bílskúrinn er sérbyggður 70m2 að stærð og eru tvær nýlegar innkeyrsluhurðir á honum. Skúrinn er fullbúinn að innan. Milliloft er yfir hluta skúrsins og er því skipt uppí herbergi og opið rými en milliloftið er ekki skráð í heildarstærð hússins.
Góður sólpallur með heitum potti er við húsið.
Lóðin er 3.147m2 að stærð, öll gróin og snyrtileg. Gróðurhús með plastklæðningu er á lóðinni.
Innkeyrsla er malbikuð og allu umhverfi er snyrtilegt.
Gott hús á góðum stað á Flúðum.
Nánari upplýsingar og bókið skoðun á skrifstofu Árborga.